Akranes

Akranes

Mannfjöldi: 8.285 (2025). Flatarmál: 10 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum

Einn stærsti dagskrárliður Írskra daga er tónlistarviðburðurinn Lopapeysan sem samanstendur af sextán mismunandi tónlistaratriðum þetta árið og fer fram næsta laugardag, þann 4. júlí. Þeir Valdimar Ingi Brynjarsson og Hjörvar Gunnarsson voru árið 2024 ráðnir viðburðastjórar bæjarhátíðarinnar sem hefur verið haldin síðan árið 1999 og fer, rétt eins og vanalega, fram á Akranesi nú á dögunum.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Breytum þessu!

Það hafa verið algjör forréttindi að fá tækifæri til að leiða lista Viðreisnar á Akranesi. Við erum að bjóða fram í fyrsta skipti í bænum okkar og erum í grunninn hópur fjölskyldufólks með fjölbreyttan bakgrunn. Við höfum einsett okkur að starfa af heiðarleika, fagmennsku og ábyrgð.

Skoðun
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Vopnið á Skaganum

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Gjöld fyrir frí­stund rokið upp

Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Fjölskyldubærinn Akra­nes

Akranes er að mínu mati fyrsta flokks fjölskyldubær. En það gerist sannarlega ekki að sjálfu sér. Til að styðja vel við fjölskylduna í heild þurfa margir hlutir að fara saman. Það þarf að hlúa að skólunum okkar svo þeir verði áfram í fremstu röð.

Skoðun
Fréttamynd

Hættum að tala um sam­einingu!

Umræðan um samskipti Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar hefur verið áberandi undanfarið, og það er í sjálfu sér ekkert nema eðlilegt. Þegar nágrannasveitarfélög ræða saman – eða jafnvel deila – þá fylgir því athygli.

Skoðun
Fréttamynd

Bjart­sýni í boði

Ég er bjartsýnismaður og finnst mikilvægt að benda á það sem jákvætt er og forðast svartsýni. Það þýðir ekki að maður láti framhjá sér fara það sem miður fer, heldur legg ég áherslu á að leita jákvæðra leiða til að leysa vandann hverju sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Mynda­veisla: Skaga­rokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994

Black Sabbath rokkmessa hófst á Akranesi í gær, föstudaginn 10. apríl, þar sem Jenni í Brainpolice, Franz úr Ensími og Dr. Spock, Hallur úr HAM og Brimbrot og Flosi úr HAM stigu á svið. Þá stigu einnig á stokk sveitirnar Bastarður og Múr. Í kvöld verður dagskráin með léttara móti en þá koma fram Hjálmar, Spacestation og Oyama.

Tónlist
Fréttamynd

Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda í­búa

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Snjó­flóð hrifsaði með sér göngugarpa

Fjallagarpurinn Sigrún Linda Birgisdóttir var hrifsuð fimmtíu metra niður Akrafjall þegar snjóflóð féll þar í gærmorgun en nokkur snjóflóðahætta var á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Líf leiðir Sjálf­stæðis­flokk á­fram á Akra­nesi

Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi, leiðir áfram lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi í vor. Sjálfstæðisflokkurinn á í dag þrjá af níu fulltrúum í bæjarstjórn Akraness. Samfylking á sömuleiðis þrjá og Framsókn einnig. 

Innlent
Fréttamynd

Íþróttabærinn Akra­nes – meira en að­staða, þetta er líf

Á Akranesi eru íþróttir ekki bara eitthvað sem gerist eftir skóla, ekki bara æfingar sem eru tikkaðar af á stundatöflu eða leikir sem eru spilaðir um helgar, heldur hluti af lífinu sjálfu, hluti af því hvernig við tengjumst, hvernig við byggjum upp fólk og hvernig við verðum að samfélagi – og það er eitthvað sem ég hef sjálf fengið að upplifa svo sterkt frá því að við fluttum hingað.

Skoðun