Strax hefði átt að loka bænum þegar ljóst var að börn höfðu smitast þar
Móðir þriggja ára stúlku sem hlaut alvarlega nýrnabilun eftir að hafa greinst með Ecoli bakteríuna á bænum Efstadal 2 segir að strax hefði átt að loka bænum þegar ljóst var að börn höfðu smitast þar. Hún upplifir að viðskiptalegir hagsmunir hafi verið teknir fram yfir líf og heilsu barnanna. Enn er óljóst hvort dóttir hennar nái sér að fullu.