Stórar kvikmyndatökur
Lokað var fyrir umferð á kafla Sæbrautar í dag þar sem stórar kvikmyndatökur fara þessa dagana fram á mynd um leiðtogafund Ronalds Reagan fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og Mikhails Gorbachev fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna, sem fram fór hérlendis þegar kalda stríðið stóð sem hæst.