13 ára bakarasnillingur
Þrettán ára sælkeri og áhugamaður um bakstur hefur nú brugðið á það ráð að baka kökur og selja á Facebook til að fjármagna utanlandsferðir. Hann sækir innblásturinn í franska sjónvarpsþætti og er ansi fær í að baka en hann bakar allt frá einföldu bananabrauði til stórra tertna með sykurmassaskreytingum.