Lærdómur dreginn af E.coli faraldrinum
Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands segir að ekki hafi verið forsendur til að loka Efstadal II á sínum tíma vegna Ecoli faraldurs. Hún segir lærdóm hafa verið dreginn af faraldrinum. Reglur hafa verið hertar á ferðamannastöðum sem bjóða upp á veitingar og snertingu við dýr auk þess sem krafa er gerð um handþvottaaðstöðu.