Manchester United - Tottenham 2-0

Rauðu djöflarnir tóku forystuna á 38. mínútu eftir vel útfærða hornspyrnu, stutta spilið skilaði sér, Bryan Mbeumo beið við vítateiginn eftir sendingu Kobbie Mainoo og lagði boltann meðfram jörðinni í fjærhornið. United hélt áfram að ógna og uppskar gott mark á 81. mínútu sem gerði út af við leikinn. Bruno Fernandes beið á fjærstönginni og slúttaði vel eftir glæsilega fyrirgjöf Diogo Dalot.

233
04:04

Vinsælt í flokknum Enski boltinn