Fagnaði áttræðis­af­mælinu og passaði í fjörutíu ára jakka­föt

Hilmar Þór arkitekt áttræður lítur út fyrir að vera sextugur. Það að verða áttræður er ekki lengur það sem það var fyrir nokkrum áratugum. Í dag er talað um að áttatíu sé hið nýja sextíu. Og gott dæmi um það eru töffarar eins og Paul McCartney, Rod Stewart og Mick Jagger sem allir eru orðnir áttræðir en mega hressir. Og gott dæmi um unglegan áttræðan mann er hinn flotti Hilmar Þór Björnsson arkitekt sem fagnaði áttræðisafmælinu í fjörutíu ára gömlum jakkafötum sem smellpössuðu á hann ennþá. Vala Matt fór og heimsótti Hilmar Þór og eiginkonu hans Svanhildi og dóttur þeirra Maríu Sigrúnu sjónvarpskonu og fékk að heyra leyndarmálin á bak við unglegt útlit Hilmars. Og hvernig þau hjónin eru eftir sextíu ára hjónaband ennþá yfir sig ástfangin.

679
12:33

Vinsælt í flokknum Ísland í dag