Þristurinn norður
Flugvélinni Páli Sveinssyni, eða Þristinum, var flogið norður til Akureyrar í gær þar sem hún verður geymd í vetur á Flugsafni Íslands. Flugmönnum finnst þetta marka sumarlok en flugstjóri vélarinnar segir sumarið núna hefjast norðan Heiða.