Ísland í dag - Sána sett á svalir á sjöundu hæð í blokk.

Sauna var sett á svalir á sjöundu hæð í blokk. Félagarnir og athafnamennirnir Jón Axel Ólafsson og Óskar Finnsson hittast reglulega í sánu sem Jón Axel er með á pallinum hjá sér og þeir slaka þar á og njóta svo góðra veitinga hjá Óskari sem er einn af virtustu matreiðslumönnum landsins. Og þó Jón Axel sé þekktastur sem einn af vinsælustu fjölmiðlamönnum landsins þá er hann einnig mjög handlaginn og listrænn og hefur undanfarin ár verið með fyrirtækið Jax handverk en þar hefur hann meðal annars hannað og smíðað útihúsgögn sem þola hreinlega öll íslensk veður og hafa þau því verið gríðarlega vinsæl. Og Óskar er verðlauna kokkur sem er með veitingastaðinn vinsæla Finnsson Bistro og var hann að gefa út kokkabók með viðbættum grill kafla. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti þá félaga á palli Jóns Axels.

72
14:38

Vinsælt í flokknum Ísland í dag