Erlent

Ís­lendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðs­efnis í Kanada

Smári Jökull Jónsson skrifar
Brot Jóhanns áttu sér stað í Abbotsford í Kanada.
Brot Jóhanns áttu sér stað í Abbotsford í Kanada. Vísir/Getty

Dómstóll í Abbotsford í Kanada hefur dæmt Íslendinginn Jóhann Sveinsson í eins og hálfs árs fangelsi fyrir vörslu barnaníðsefnis. Jóhann játaði sök í desember fyrir tæpum tveimur árum eftir að hafa flúið réttvísina um nokkurt skeið þar á undan.

Í frétt á vef miðilsins Abbynews kemur fram að dómurinn hafi fallið þann 26. október síðastliðinn og hljóði upp á átján mánaða fangelsi og þriggja ára skilorðsbundinn dóm.

Jóhann var dæmdur sekur í tveimur ákæruliðum af þremur en einn var látinn niður falla. Var hann dæmdur fyrir að hafa dreift barnaníðsefni í júní 2022 og einnig fyrir vörslu slíks efnis í maí árið eftir.

Rannsókn á máli Jóhanns hófst árið 2023 og var hann handtekinn á meðan á henni stóð en síðar látinn laus áður en ákæra var gefin út. Í frétt Abbynews segir að stórglæpadeild lögreglunnar hafi framkvæmt ítarlega rannsókn og meðal annars farið í húsleitir sem leiddi til þess að Jóhann var handtekinn.

Þegar taka átti málið fyrir í dómstólum í lok árs mætti Jóhann ekki fyrir dóm og var í kjölfarið gefin út handtökuskipun á hendur honum.

Samkvæmt frétt á vef DV á sínum tíma segir að Jóhann hafi flúið frá Abbotsford, sem er í fylkingu Bresku-Kólumbíu í Kanada, og til bæjarins Stoney Plain í úthverfi Edmonton í Alberta-fylki. Átti hann að hafa farið þangað með konu sinni og barni.

Hann hafi síðan gefið sig fram við lögreglu til að svara til saka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×