Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar 3. nóvember 2026 11:32 Ég bjó í sveit í 33 ár. Nágrannar mínir voru bæði Íslendingar og útlendingar og sama gilti um eigendur eyðijarða í sveitinni. Aldrei man ég eftir að það hafi skipt máli í dagsins önn eða að við værum upptekin af þjóðerni okkar. Við deildum kjörum saman í sátt og samlyndi. Nú les ég lærðar greinar um að útlendingar séu hættulegt fólk og megi alls ekki eiga jarðir í landinu né hasla sér þar völl. Á sama tíma mega útlendingar fjárfesta og eignast hvað sem er í ferðaþjónustu þjóðarinnar og flestar dyr þar þeim opnar upp á gátt. Í sjávarútvegi telja flestir það til landráðs að opna miðin og veiðarnir fyrir útlendingum. Svo má alls ekki blanda útlenskum erfðavísum í íslenska kúastofninn. Það yrði ávísun á hrun í íslenskum landbúnaði. Firðirnir eru líka fallegir Það vekur þess vegna athygli að mörgum þeim sem vilja vernda landið gegn ásælni útlendinga finnst í fínu lagi að gefa útlendingum heilu firðina á silfurfati til að ala frjóan lax í opnum sjókvíum, ekki íslenskan lax, heldur innfluttan frá útlöndum. Þá er allri ættjarðarást varpað fyrir róða af því að vonin um gróða af eldinu vegur þyngra en ástin á landi og þjóð. Þetta var í bernsku minni kallað tvískinnungur. En þessi gróði er dýrkeyptur af því að örlætið við útlendingana í eldisiðjunni felur í sér mengun á lífríkinu í fjörðunum og erfðablöndun við villtan íslenskan lax. Það mun fyrr en varir höggva stórt skarð í búsetuna og atvinnulífið í dreifðum byggðum. Engar mótvægisaðgerðir geta forðað því nema lokaðar kvíar og ófrjór lax með nýjum lögum sem setja útlensku eldisiðjunni skýr mörk. Laxinn er samfoinn í lífræðilega fjölbreytni náttúrunnar. Firðir landsins eru auður fólksins og fegurðar. Viljum við fórna þessu fyrir útlenskan skammtímagróða í opnu sjókvíaeldi? Kvótavæða gjöfina Svo er barist fyrir því að öllum gjafaleyfunum í opna sjókvíaeldinu til útlendinganna verði breytt í varanlegan eignarkvóta svo hægt verði að versla með firðina á markaðstorgum í útlöndum. Þar með yrði formlegur og virkur útflutningur á íslensku landi kominn á fullt skrið. Þetta boðaði frumvarp síðustu og núverandi ríkisstjórnar og flutt á Alþingi. Enginn þingmaður gerði athugasemdir við gjafagjörninga á fjörðum landsins til útlendinga, ekki einu sinni úr röðum Miðflokks og Framsóknarflokks sem segja stundum á hátíðarstundum að elski Ísland meira en flestir. Samkvæmni í fyrirrúmi? Einu sinni var börnum boðað að vera sjálfum sér samkvæm. Það kemur í huga, þegar menn mæra opna sjókvíeldið, gefa útlendingum firðina og létu með einu opinberu pennastriki fylgja með sérstakt leyfi til að ala þar frjóan og útlenskan lax sem er hrein aðför að íslensku lífríki. Það eru því öfugmæli, þegar sömu menn stíga nú á stokk og segjast elska landið sem megi alls ekki verða útlendingum að bráð. Afhverju gilda gilda ekki sömu reglur um fjarfestingar og eignarhald í opnu sjókvíaeldi og í íslenskum sjávarútvegi? Hefur hér samkvæmni skolast til og tvískinnungur tekið yfir og innblásinn af dágóðum skammti af hræsni? Eigi að síður er ættjarðarástin falleg, - og líka þegar við deilum henni með útlendingum í sátt og samlyndi lífinu til farsældar. Höfundur er fyrrv. alþingismaður og fyrrv. sóknarprestur í Heydölum í Breiðdal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnlaugur Stefánsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun