Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 22:33 Dagana 2.–8. nóvember fer fram árleg evrópsk vitundarvakning um ófrjósemi. Í ár er sjónum beint að því hvernig ófrjósemi fylgir fólki inn á vinnustaðinn og hvernig atvinnurekendur geta veitt stuðning. Frjósemisvandi verður ekki eftir heima þegar fólk mætir til vinnu. Frjósemisvandi snertir marga og reikna má með að einn af hverjum sex starfsmönnum á barneignaraldri glími við slíkan vanda. Þótt umræðan hafi orðið opnari á síðustu árum veigra margir sér enn við að ræða eigin reynslu, meðal annars við yfirmenn og samstarfsfólk. Frjósemisvandi og meðferðir við honum geta haft mikil andleg, líkamleg og fjárhagsleg áhrif. Ferlið getur verið langvarandi og einkennst af óvissu, kvíða og vonbrigðum. Hormónameðferðir og önnur inngrip geta aukið álagið, auk þess sem kostnaður getur verið verulegur. Að sinna vinnu samhliða þessu getur því verið krefjandi. Enginn velur sér þessa vegferð. Þess vegna skiptir miklu máli að fólk finni fyrir skilningi og stuðningi í umhverfi sínu. Þar gegna atvinnurekendur og samstarfsfólk mikilvægu hlutverki. Við í Tilveru, samtökum um ófrjósemi, hvetjum atvinnurekendur til að viðurkenna að frjósemisvandi og meðferðir við honum séu raunverulegt viðfangsefni á vinnustöðum. Stuðningur getur meðal annars falist í því að tryggja starfsfólki fjarveru vegna meðferða án skerðingar á orlofi eða launum, bjóða sveigjanlegt vinnufyrirkomulag þar sem því verður við komið og standa vörð um friðhelgi einkalífs. Fólk þarf að geta óskað eftir stuðningi án þess að þurfa að deila viðkvæmum upplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er. Þótt réttur til fjarveru vegna tæknifrjóvgunarmeðferða sé þegar tryggður í sumum kjarasamningum heyrum við hjá Tilveru því miður enn frásagnir af fólki sem fær ekki nægan stuðning eða sveigjanleika á vinnustað meðan á meðferð stendur. Við viljum að þessum frásögnum fækki og að stuðningur við fólk með frjósemisvanda verði sjálfsagður hluti af vinnustaðamenningu. Með skilningi, sveigjanleika og virðingu geta vinnustaðir létt undir með fólki á krefjandi tímum. Höfundur er stjórnarmaður í Tilveru, samtökum um ófrjósemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Sjá meira
Dagana 2.–8. nóvember fer fram árleg evrópsk vitundarvakning um ófrjósemi. Í ár er sjónum beint að því hvernig ófrjósemi fylgir fólki inn á vinnustaðinn og hvernig atvinnurekendur geta veitt stuðning. Frjósemisvandi verður ekki eftir heima þegar fólk mætir til vinnu. Frjósemisvandi snertir marga og reikna má með að einn af hverjum sex starfsmönnum á barneignaraldri glími við slíkan vanda. Þótt umræðan hafi orðið opnari á síðustu árum veigra margir sér enn við að ræða eigin reynslu, meðal annars við yfirmenn og samstarfsfólk. Frjósemisvandi og meðferðir við honum geta haft mikil andleg, líkamleg og fjárhagsleg áhrif. Ferlið getur verið langvarandi og einkennst af óvissu, kvíða og vonbrigðum. Hormónameðferðir og önnur inngrip geta aukið álagið, auk þess sem kostnaður getur verið verulegur. Að sinna vinnu samhliða þessu getur því verið krefjandi. Enginn velur sér þessa vegferð. Þess vegna skiptir miklu máli að fólk finni fyrir skilningi og stuðningi í umhverfi sínu. Þar gegna atvinnurekendur og samstarfsfólk mikilvægu hlutverki. Við í Tilveru, samtökum um ófrjósemi, hvetjum atvinnurekendur til að viðurkenna að frjósemisvandi og meðferðir við honum séu raunverulegt viðfangsefni á vinnustöðum. Stuðningur getur meðal annars falist í því að tryggja starfsfólki fjarveru vegna meðferða án skerðingar á orlofi eða launum, bjóða sveigjanlegt vinnufyrirkomulag þar sem því verður við komið og standa vörð um friðhelgi einkalífs. Fólk þarf að geta óskað eftir stuðningi án þess að þurfa að deila viðkvæmum upplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er. Þótt réttur til fjarveru vegna tæknifrjóvgunarmeðferða sé þegar tryggður í sumum kjarasamningum heyrum við hjá Tilveru því miður enn frásagnir af fólki sem fær ekki nægan stuðning eða sveigjanleika á vinnustað meðan á meðferð stendur. Við viljum að þessum frásögnum fækki og að stuðningur við fólk með frjósemisvanda verði sjálfsagður hluti af vinnustaðamenningu. Með skilningi, sveigjanleika og virðingu geta vinnustaðir létt undir með fólki á krefjandi tímum. Höfundur er stjórnarmaður í Tilveru, samtökum um ófrjósemi.
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun