Handbolti

Fimmti sigur Eyjakvenna í röð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sandra Erlingsdóttir skoraði fjögur fyrir ÍBV í dag.
Sandra Erlingsdóttir skoraði fjögur fyrir ÍBV í dag. vísir/Ernir

ÍBV vann tveggja marka sigur, 26-24, á Gróttu á Seltjarnarnesi í sjöundu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Eyjakonur fóru upp í annað sætið með sigrinum.

ÍBV tapaði fyrir Valskonum í öðrum leik deildarinnar en vann í dag fimmta sigurinn í röð í kjölfarið.

Grótta var sterkari aðilinn í upphafi leiks og komst 5-1 yfir snemma leiks. Grótta hélt forystunni fram að hálfleik en þegar hálfleiksflautið gall var staðan 14-12 fyrir Seltirninga.

Grótta byrjaði síðari hálfleikinn álíka sterkt og þann fyrri er liðið náði fimm marka forystu í fyrsta sinn í stöðunni 17-12.

ÍBV skellti þá í lás og við tók 8-2 kafli þar sem Eyjakonur sneru leiknum við og komust 20-19 yfir.

Eyjakonur voru eftir það skrefi á undan og unnu að endingu tveggja marka sigur, 26-24. Um er að ræða fimmta sigur Eyjakvenna í röð sem fara upp fyrir Val í annað sæti deildarinnar með 12 stig, tveimur á eftir toppliði Hauka sem er með fullt hús.

Grótta er með fjögur stig í sjöunda sæti.

Eyjakonan Ásdís Halla Hjarðar var markahæst á vellinum í dag með sjö mörk og liðsfélagi hennar Andrea Jacobsen skoraði fimm fyrir ÍBV. Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir skoraði fimm af línunni fyrir Gróttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×