Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar 30. október 2026 13:31 Í tilefni af blossandi endurnýjun Íslamófóbíunnar og hatursumræðu síðustu daga er þetta skrifað um fóbíuna og tiltekin dæmi um samkynhneigð og Sjaría löggjöf. Ég bæti við skilningi fóbíunnar á barnaníði, kúgun kvenna og árásargirnd múslíma á morgun ef ég fæ pláss. Íslamófóbía vísar til fordóma, haturs og ótta sem beinist að íslam og/eða múslímum. Íslamófóbían er viðvarandi tilbúningur staðalímynda um múslíma sem eru sagðir einsleitur hópur, ofbeldisfullur og öfgasinnaður og algerlega litið fram hjá margbrotnu mannlífi í menningarheimi Íslam sem og fjölbreytileika mannlífs í einstökum löndum múslíma - fjölbreytni sem er meira en STJARNFRÆÐILEGA RÍKARI en í vesturlenskum samfélögum. Hatrið og óttinn við Íslam byggist á þeirri vanþekkingu að þau séu ofbeldisfull trúarbrögð og ósamrýmanleg vestrænum gildum sem er fjarri lagi en áunnar ranghugmyndir eru seigar og hafa fest rætur vegna þekkingarskorts á kenningum og hefðum íslam. Í Bandaríkjunum er Íslamófóbían, sem er flutt til Evrópu og víðar, mörg hundruð milljóna dollara iðnaður sem heldur úti óteljandi haturssíðum þar sem ríkja útúrsnúningar, tilbúningur og hreint níð. Íslamófóbían leiðir til mismununar í atvinnulífinu, menntastofnunum og opinberri þjónustu og leiðir til mismununar á öllum sviðum þjóðlífsins. Íslamfóbían leiðir til þrúgandi eftirlits með samfélögum múslíma, takmarkana á trúarlegum tjáningum hvað varðar klæðaburð, erfiðleika í úthlutun byggingarleyfa moska og hlutdrægni í innflytjendalöggjöf. Múslimar verða fyrir leiðinda áreitni, svo sem niðrandi athugasemdum, og óréttmætum ásökunum um hryðjuverk. Íslamófóbían kemur fram í daglegum samskiptum og hegðun öllum til leiðinda og áþreifanlegra vandræða fyrir venjulegt múslímskt fólk.Samkynhneigð: Áður en nýlenduútrás Vesturlanda hófst var viðhorf í löndum Íslam til samkynhneigðar blæbrigðaríkara en í Evrópu. Þótt kynlíf samkynhneigðra hafi formlega verið bannað segir Ibn Tamyyia einn virtasti Kóranskýrandinn að samkynheigð sé ekki refsiverð. Og við samfarir samkynhneigðra þurfti fjögur vitni til að staðfesta brot - nánast ómöguleg krafa.Bresk nýlendulög - sérstaklega 377. grein, - gerðu kynlífsathafnir milli einstaklinga af sama kyni refsiverðar og þau voru flutt út um alla Afríku og Asíu. Þótt Íran hafi ekki verið nýlenda voru lögin hert undir stjórn Pahlavi-ættarinnar sem komst til valda um 1920 með aðstoð Breta og BNA og eftir 1979 sameinaði íslamska lýðveldið innflutta hómófóbíu og trúarlega þjóðernishyggju. Núverandi lög gegn samkynhneigð í löndum Íslam endurspegla þennan arf – en ekki íslamskar hefðir því múslimsk samfélög fögnuðu opinskátt fegurð karla og ást í ljóðlist og dulspeki. Skáld eins og Rúmí og Abú Núvas skrifuðu um ást milli einstaklinga af sama kyni án þess að hneyksla. Þessu viðhorfi var raskað á 18. og 19. öld með tilkomu evrópskra nýlenduvelda og kristinna trúboða því landvinningunum fylgdi viktoríönsk siðfræði, sem leit á samkynhneigð sem synd og félagslegan sjúkdóm.Sjaría: Það er enginn lagabálkur til sem kallast Sjaría. Lög heita fiq í Íslam og Sjaría er AÐFERÐ til lagasetningar og stuðst er við 50-60.000 bókartitla sem margir eru í 20 bindum. Sjaríabókmenntirnar eru umræða og álitsgerðir sem hvert það múslímasamfélag sem ætlar að setja sér lög fer í til ráðgjafar. Lögin eru svo sett með eftirfarandi í huga: Hvað segir Kóraninn um málið, hvað segja samtímamenn Múhammads, hverjar eru venjurnar í því samfélagi þar sem lögin eiga að gilda og beita skal heilbrigðri skynsemi við lagsetninguna. Það er mikill misskilningur að Sjaría séu guðslög (sumir múslímar misskilja það líka) það eru rúmlega 6.300 vers í Kóraninum en bara 2- 300 þeirra fjalla um lög og breytni og oftast um það sama: GEFÐU MEÐ ÞÉR, VERTU TIL FRIÐS OG STUNDAÐU BÆNIR og burstaðu tennurnar. Sharía er sem sagt aðferð sem MENN en ekki Guð beita við lagasetningu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sverrir Agnarsson Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun