Innlent

Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ

Atli Ísleifsson skrifar
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri segir þungbært að þurfa að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á störf og afkomu fólks.
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri segir þungbært að þurfa að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á störf og afkomu fólks. Vísir/Vilhelm

Alls hafa 23 störf verið lögð niður hjá Hafnarfjarðarbæ sem samsvarar 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðin önnur störf hjá bænum, og er því um að ræða nettófækkun upp á 18,6 stöðugildi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Þar segir að bæjarráð hafi samþykkt á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. 

„Alls verða 23 störf lögð niður sem samsvarar 21,6 stöðugildum en þremur starfsmönnum boðin önnur störf hjá bænum. Því er nettófækkun 18,6 stöðugildi.

Aðgerðirnar ná til allra sex sviða bæjarins, þ.e. fjölskyldu- og barnamálasviðs, mennta- og lýðheilsusviðs, þjónustu- og þróunarsviðs, fjármálasviðs, stjórnsýslusviðs og umhverfis- og skipulagssviðs. Áætlað er að hagræðingin skili 330 milljónum króna í varanlegum árlegum sparnaði frá og með árinu 2028. Jafnframt verða innleiddar takmarkanir á ráðningum og sérstök miðlæg ráðningarnefnd sett á laggirnar. Launakjör yfirstjórnar verða fryst til tveggja ára.

Hagræðingaraðgerðirnar eru liður í að bregðast við þröngri fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar og treysta rekstur hans til framtíðar. Áhersla er lögð á að lækka kostnað við stjórnsýslu, einfalda skipulag og standa vörð um grunnþjónustu við bæjarbúa.

Umfangsmikil greiningarvinna og vægari leiðir skoðaðar

Undanfarna mánuði hefur farið fram umfangsmikil greining á rekstri, skipulagi og mönnun með stjórnendum bæjarins. Leitað hefur verið leiða til að draga úr kostnaði með sem minnstum áhrifum á starfsfólk og þjónustu. Meðal annars með starfsmannaveltu, tilfærslu verkefna og sameiningu starfa. Ítarleg greiningarvinna og hálfsársuppgjör sveitarfélagsins liggja að baki þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til.

Fækkunin beinist fyrst og fremst að stjórnunar- og sérfræðistörfum sem og störfum í innri þjónustu en ekki störfum sem sinna daglegri grunn- og framlínuþjónustu. Stjórnendastöðugildum fækkar um fjögur, þar af eru þrjár deildarstjórastöður.

Ekki eru fyrirhugaðar frekari uppsagnir í hagræðingarskyni.

Hertar ráðningarreglur og aðhald í yfirstjórn

Störf sem losna verða ekki sjálfkrafa endurmönnuð og ráðningar utan grunnþjónustu verða háðar samþykki ráðningarnefndar. Áfram verður heimilt að ráða vegna eðlilegrar starfsmannaveltu í leikskólum, grunnskólum og á heimilum fyrir fatlað fólk, að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Fjárhagsstaðan kallar á aðgerðir

Hálfsársuppgjör Hafnarfjarðarbæjar sýnir að rekstrarhalli A-hluta nam 2,36 milljörðum króna, en áætlun gerði ráð fyrir 435 milljóna króna afgangi. Frávikið nemur tæplega 2,8 milljörðum króna og skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingarréttar, auknum rekstrarkostnaði og hækkun fjármagnsgjalda. Áætlað er að bæta þurfi árlega rekstrarafkomu bæjarins um minnst 3 milljarða króna til að tryggja traustan grunnrekstur. Aðgerðirnar eru því liður í víðtækari hagræðingu og auknu aðhaldi sem mið verður tekið af við gerð fjárhagsáætlunar 2027,“ segir í tilkynningunni. 

Ekki komist hjá uppsögnum

Haft er eftir Þórði Þórarinssyni bæjarstjóra að það sé þungbært að þurfa að taka ákvarðanir sem hafi áhrif á störf og afkomu fólks. 

„Hér er um að ræða hæft og gott starfsfólk sem hefur lagt mikið af mörkum til bæjarins og ég vil þakka því fyrir þeirra störf. Við höfum lagt mikla vinnu í að finna vægari leiðir til hagræðingar en því miður verður ekki komist hjá uppsögnum. Við leggjum áherslu á að vel verði staðið að breytingunum og að starfsfólk fái viðeigandi stuðning.

Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar er erfið og við verðum að bregðast við henni af festu og ábyrgð. Við gerum auknar kröfur um aðhald í ráðningum og rekstri. Þetta er fyrsta skrefið í stærra verkefni sem snýst um að ná tökum á rekstrinum, endurskoða forgangsröðun og standa vörð um grunnþjónustuna. Markmiðið er að tryggja að Hafnarfjörður hafi áfram burði til að veita bæjarbúum góða þjónustu,“ segir Þórður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×