Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Freyja Þórisdóttir skrifar 28. október 2026 21:17 Ofurfyrirsætan Karlie Kloss er ein þeirra sem vinnur hörðum höndum að því að endurvekja útgáfu Life-tímaritsins níutíu árum eftir að það fór fyrst í prent. Getty Eitt þekktasta, og að margra mati mikilvægasta, tímarit sem birti og skrásetti fréttaljósmyndir 20. aldarinnar, snýr nú aftur en það kom fyrst inn á sjónarsviðið fyrir níutíu árum. Útgáfu blaðsins var hætt upp úr 1970 þegar sjónvarpið reið sér rúms en það var svo endurvakið átta árum síðar og gefið út einu sinni í mánuði þar til um aldamótin.
Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátindi sínum á sjöunda áratugnum þegar það seldist í meira en átta milljónum eintaka í hverri viku. Spennt að deila með fleirum Þá var greint frá því í morgun að blaðið myndi snúa aftur og yrði gefið út enn á ný frá og með 23. nóvember næstkomandi. Er það ofurfyrirsætan og frumkvöðullinn Karlie Kloss sem stendur að endurræsingunni í gegnum fyrirtæki sitt Bedford Media, sem keypti réttinn að Life árið 2024, eftir því sem fram kemur í umfjöllun The New York Times um tímamótin. „Fyrir ykkur sem hafið elskað Life í mörg ár, og ykkur sem eruð að uppgötva það í fyrsta sinn, erum við spennt að sýna ykkur hvað er í vændum,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem Times hefur undir höndum. Forsíður tímaritsins Life voru iðulega prýddar með mynd af amerísku leikkonunni og fyrirsætunni Marilyn Monroe.Getty Fyrsta tölublaðið skartar þemanu „Hvar stöndum við nú?“, og samkvæmt Times mun það veita „innsýn í Ameríku í leit að merkingu: vísindamenn og listamenn, frumkvöðla og íþróttafólk, börn og áttræðinga, kolanámumenn og drónasmiði“. „Það sem gerði Life einstakt var hæfni þess til að láta heiminn virðast nær,“ segir Kloss við Times „og ábyrgð okkar er að varðveita og vernda þá arfleifð.“ Færa út kvíarnar Fjölmargar sögufrægar fréttaljósmyndir hafa verið birtar á síðum tímaritsins í gegnum tíðina, svo sem þessi frá því þegar bandarískir hermenn kysstu konur í fagnaðralátunum á Times Square þann 7. maí 1945.Getty Hún segir einnig að áform séu uppi um að færa út kvíarnar yfir á samfélagsmiðla, vefsíðu, stutt myndbönd og heimildarmyndir. Fyrsta tölublaðið verði 250 blaðsíðna rit í stóru broti sem mun kosta 45 dali, eða um 5.500 íslenskar krónur. Kloss, sem er gift Joshua Kushner, einum eigenda Bedford Media og bróður Jareds Kushner, tengdasonar Trumps forseta, keypti áður tískutímaritið i-D og endurræsti það í fyrra. Hún á einnig hlut í tímaritinu W en í viðtali við Times sagði hún að þau ætli að vanda sig og leggja áherslu á að ná mælanlegum árangri í átt að arðsemi frekar en að flýta sér um of. Líkt og fyrr segir var blaðið gríðarlega vinsælt á sínum tíma og í því voru birtar myndir sem teknar voru á meðan síðari heimsstyrjöldin geisaði, geimkapphlaupið var háð og réttindabarátta ýmissa hópa náði hápunkti. Tímaritið birti verk ljósmyndara á borð við Robert Capa, Alfred Eisenstaedt og Gordon Parks.
Tímamót Bandaríkin Mest lesið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Sjá meira