Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum Kristján Már Unnarsson skrifar 28. október 2026 06:00 Jónína Ögn Jóhannesdóttir, bóndi á Illugastöðum, og tengdasonur hennar, Gunnar Sveinsson, í viðtali fyrir þáttinn „Um land allt“. Egill Aðalsteinsson Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi.
Þau Friðrik og Agnes voru hálshöggvin fyrir morð á tveimur mönnum, Natan Ketilssyni og Pétri Jónssyni, en Natan var bóndi á Illugastöðum. Bróðir Natans, Guðmundur Ketilsson, var fenginn til að höggva þau Friðrik og Agnesi og hann settist svo að á Illugastöðum. Rætt við húsráðendur við eldhúsborðið á Illugastöðum.Egill Aðalsteinsson Þangað rennum við í hlað og heilsum upp á húsráðendur. Við eldhúsborðið nærri tvöhundruð árum síðar finnum við að sagan stendur nærri fólkinu. Þar sitja nefnilega afkomendur þessa síðasta böðuls á Íslandi, Guðmundar Ketilssonar. „Já, ég er það. Sjötti frá honum,“ svarar Jónína Ögn Jóhannesdóttir, bóndi á Illugastöðum, þegar við ræðum við hana og tengdason hennar, Gunnar Sveinsson, fyrir þáttinn Um land allt, sem frumsýndur verður á Sýn+ í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 19:20. Brot úr þættinum má sjá hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: -En hvernig var að alast upp með þessa vitneskju? „Ég fann nú ekki fyrir neinu, svo sem. Það var bara ekkert verið að ræða um þetta á mínu bernskuheimili.“ -Heldurðu að þetta hafi verið eitthvað sem fólk vildi ekki tala um? „Ja, mamma allavega fræddi okkur systkinin ekki á þessu,“ svarar Jónína. „En hún var að segja fólki frá þessu sem kom hér í heimsókn og allt það og það var allt í lagi svo sem. En svo þegar var farið að spyrja okkur þá vorum við bara strand. Við vissum ekki svo mikið.“ Jónína Ögn er afkomandi böðulsins Guðmundar Ketilssonar í sjötta lið. Guðmundur var bróðir Natans Ketilssonar, bóndans sem myrtur var á Illugastöðum.Egill Aðalsteinsson -En þegar þú áttaðir þig á því að þú værir afkomandi síðasta böðulsins á Íslandi, hvernig varð þér við? „Ég bara held að það hafi ekki breytt neinu,“ svarar Jónína. -Er fólk að koma hingað út af þessum morðum, út af þessari sögu? „Já, það hefur gert það, bæði útlendingar og Íslendingar. Og stundum hafa komið hingað hópar, af eldra fólki til dæmis úr Reykjavík hafa komið hingað bara gagngert til þess að skoða staðinn.“ Aftökustaðurinn á Þrístöpum er orðinn áningarstaður ferðamanna. Þar má sjá eftirmynd af öxinni og höggstokknum. Öxin sem notuð var við aftökuna er varðveitt á Þjóðminjasafninu í Reykjavík. -En hvernig líður ykkur sem landeigendum að fólk sé að koma hingað út af morðum og aftöku? „Þetta er nú bara sagan sko. Henni verður ekki breytt,“ svarar Gunnar sem titlar sig vinnumann á Illugastöðum. „Maður breytir þessu ekki. Og við getum svo sem ekkert við því gert. En það er alveg sjálfsagt að fólk komi. Kannski finnur það fyrir einhverju, ég veit það ekki. Ég finn ekki fyrir nokkrum sköpuðum hlut hérna,“ segir Jónína. Magnús Ólafsson, sagnamaður og fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum, segir frá aftöku Friðriks og Agnesar á Þrístöpum.Egill Aðalsteinsson Þessi fyrsti þáttur nýrrar þáttaraðar „Um land allt“ fjallar um helstu sögustaði síðustu aftökunnar á Íslandi. Á aftökustaðnum Þrístöpum fer sagnamaðurinn Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum yfir söguna. Í kirkjugarðinum á Tjörn á Vatnsnesi sýna bændur okkur gröf þeirra Friðriks og Agnesar og einnig staðinn þar sem talið er að þeir Natan Ketilsson og Pétur Jónsson séu grafnir. Bæirnir Kornsá, Vatnsdalshólar og Hvammur í Vatnsdal eru heimsóttir, einnig Þingeyrar og Steinnes, og forvitnast um hversvegna erlendir ferðamenn fara um Húnavatnssýslur á vettvang þessara myrku atburða. Hér má sjá kynningarstiklu næstu þáttaraðar:
Um land allt Sýn Bíó og sjónvarp Húnaþing vestra Húnabyggð Dómsmál Tengdar fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið. 26. október 2026 20:22 Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. 2. júlí 2026 09:12 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira
Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið. 26. október 2026 20:22
Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. 2. júlí 2026 09:12