Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 28. október 2026 11:16 Talið er að hópurinn hafi verið ráðinn til þess að fremja ofbeldisverk á Íslandi. Í nýrri löggæsluáætlun er fjallað um aukin umsvif skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi. Vísbendingar séu um að glæpahóparnir séu að taka upp sambærilegar aðferðir og þekkjast í Evrópu, að greiða þriðja aðila fyrir að fremja afbrot. vísir/vilhelm Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Einn úr hópnum var stuttu síðar handtekinn í Svíþjóð fyrir tilraun til manndráps.
Hópurinn var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli í fyrra og segir Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, að um hafi verið að ræða fjóra sænska ríkisborgara sem komu til Íslands með flugi frá þremur mismunandi löndum. Lögregla hafi komist á snoðir um að fólkið, sem er talið tengjast skipulögðum glæpasamtökum í Svíþjóð, hafi verið væntanlegt til landsins og í kjölfarið hafi verið sett af stað vinna hjá lögreglu og tollgæslu auk þess sem frekari upplýsinga var aflað erlendis frá. Eftir greiningarvinnu hafi verið ákveðið að stöðva einstaklingana í Keflavík við komu þeirra til landsins og brottvísa þeim með vísan til allsherjarreglu. Grunur leikur á um að aðilar á Íslandi hafi ráðið hópinn til þess að fremja ofbeldisbrot hér á landi og greitt fyrir þjónustuna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þetta ekki eina tilvikið þar sem grunur leikur á um að greitt sé fyrir þjónustu erlendra skipulagðra glæpasamtaka í brotastarfsemi á Íslandi en slíkt hefur færst í aukana í öðrum Evrópuríkjum á síðustu árum. Þaulskipulögð árás Þann 10. júní í fyrra, eða innan við tveimur vikum eftir að fólkinu var vísað úr landi, var ungur karlmaður úr hópnum handtekinn eftir skotárás og tilraun til manndráps í Järfälla, úthverfi Stokkhólms. Í frétt sænska ríkisútvarpsins segir að málið hafi tengst gengjaátökum. Maðurinn var í nóvember dæmdur í sextán ára fangelsi og var árásin sögð hafa verið þaulskipulögð. Tvær ungar konur voru einnig dæmdar fyrir hlut sinn í málinu en þær voru ákærðar fyrir að hafa lokkað fórnarlambið á tiltekinn stað þar sem til stóð að taka viðkomandi af lífi. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, gegndi formennsku í stýrihópnum sem vann nýja löggæsluáætlun. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, skipaði hópinn í febrúar síðastliðnum.Vilhelm Í nýrri löggæsluáætlun er fjallað um umfang skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi. Þar segir að innlendum og erlendum brotahópum, sem einkennist af alþjóðlegum tengslum, hafi fjölgað hér á landi. Vísbendingar séu um að þeir séu að taka upp sambærilegar aðferðir og þekkjast víða annars staðar í Evrópu, að greiða þriðja aðila fyrir að beita ofbeldi og hagnýta viðkvæma hópa, þar á meðal börn. Í áætluninni segir að leggja þurfi aukna áherslu á áhættugreiningar á landamærum og farþegagreiningar ásamt því að efla samstarf löggæsluyfirvalda við önnur ríki og stofnanir. Þar beri sérstaklega að nefna Landamærastofnun Evrópu (Frontex), Europol, Eurojust svo og innlendar stofnanir á borð við Útlendingastofnun og tollgæslu.
Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjá meira