Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. október 2026 12:22 Mikil spenna er á Vesturbakkanum. AP Öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum verður lokað á meðan kosningar fara fram í Ísrael. Palestínumönnum verður meinaður aðgangur að öllum landtökubyggðum.
Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Samaríu og Jórdandalinn, þar á meðal á iðnaðarsvæðum, auk lokunar allra landamærastöðva“. Einnig verði flestum verkamönnum meinaður aðgangur að landtökubyggðum frá og með sunnudeginum. Takmarkanirnar koma í kjölfar þess að tveir Palestínumenn skutu tvo ísraelska hermenn til bana á hernumdu svæði Vesturbakkans. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, skipaði umfangsmiklar aðgerðir í kjölfarið og hefur ísraelski herinn rifið heimili og fyrirtæki í borginni Hebron. Um tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir að heiman vegna þessa og að minnsta kosti ein gata var jöfnuð við jörðu. Algengt er að ísraelski herinn rífi heimili Palestínumanna sem grunaðir eru um að hafa gert árásir á Ísraela á Vesturbakkanum. Búið er að girða Hebron af og takmarka verulega ferðafrelsi íbúa hennar. Um tvö hundruð þúsund manns búa í borginni. Mikil spenna er á Vesturbakkanum og hefur ofbeldi ísraelskra landtökumanna í garð Palestínumanna aukist til muna. Í tíð ríkisstjórnar Netanjahús hefur ólöglegum landtökubyggðum á svæðinu fjölgað til muna. Á Vesturbakkanum búa núna um fimm hundruð þúsund landtökumenn og þrjár milljónir Palestínumanna. Ísraelar greiða atkvæði á þriðjudaginn og gefa skoðanakannanir í skyn að það muni muna litlu þegar kemur að flokki Netanjahú. Í umfjöllun Al Jazeera segir að stjórnarandstöðuflokkarnir fái 52 sæti í nýjustu skoðanakönnunum á meðan flokkur Netanjahú fái 52. Til að ná meirihluta í ísraelska þinginu þarf 61 sæti.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira