Erlent

Kim fór til Kína

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Kim fór yfir brúna.
Kim fór yfir brúna. EPA

Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, ferðaðist til Kína yfir nýopnaða brú á milli landanna tveggja. Þetta er fyrsta utanlandsferð Kim sem vitað er af í yfir ár.

Kim fór um borð í lestina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem fór yfir nýju brúna sem liggur yfir Yalu-fljótið og endaði í kínversku borginni Dandong. Li Qiang, forsætisráðherra Kína, lagði leið sína sömuleiðis til borgarinnar samkvæmt umfjöllun The Guardian.

Ekki var greint opinberlega frá ferðum Kim og Qiang og hefur ferðalag Kims enn ekki verið formlega staðfest. Þetta er í sjötta skiptið sem Kim heimsækir Kína og sú fyrsta síðan í september 2025 þegar hann var viðstaddur hersýningu í Peking ásamt Xi Jinping, forseta Kína, og Vladimír Pútín. 

Brúin var opnuð um miðjan október en liðin eru tólf ár frá því að Kínverjar luku við smíði hennar. Opnunin hafði hins vegar tafist hjá fulltrúum Norður-Kóreu. 

Á sama tíma og samband Norður-Kóreu og Kína styrkist veikist samband þeirra við Suður-Kóreu. Kim Yo Jong, systir Kim, hefur sent frá sér tíu yfirlýsingar þar sem hún gagnrýnir stjórnvöld í Seúl. Þá tilkynnti hún að kveikt yrði á útsendingu úr hátölurum við landamæri þeirra að Suður-Kóreu innan fárra daga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×