Innherji

Af­koman yfir væntingum en horfurnar versna með hækkandi elds­neytis­verði

Hörður Ægisson skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að EBIT rekstrarbati, mettekjur og sterk lausafjárstaða sýni að rekstur félagsins sé á réttri leið. „Á sama tíma eru þær breytingar sem við erum að gera þvert á félagið að skila raunverulegum árangri sem sést víða í rekstrinu.“
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að EBIT rekstrarbati, mettekjur og sterk lausafjárstaða sýni að rekstur félagsins sé á réttri leið. „Á sama tíma eru þær breytingar sem við erum að gera þvert á félagið að skila raunverulegum árangri sem sést víða í rekstrinu.“ Sýn/Arnar

Árangur af umfangsmiklum breytingum á rekstri Icelandair er þegar farinn að skila sér í ávinningi upp á nærri tuttugu milljarða á ársgrundvelli, að sögn stjórnenda flugfélagsins, sem segja undirliggjandi afkomu sterkari en nýjar uppgjörstölur gefa til kynna. Rekstrarhagnaður Icelandair var talsvert yfir væntingum sumra greinenda, en þrátt fyrir verulegan afkomubata á háannatíma flugfélagsins stefnir í mikið tap á síðustu mánuðum ársins vegna hækkandi eldsneytisverðs og sterkrar krónu.


Tengdar fréttir

Viðsnúningur í rekstri og kostnaðar­lækkun „lífs­nauð­syn­leg“ fyrir Icelandair

Lægra eldsneytisverð og sterkari sjóðstaða hjá Icelandair þýðir að horfur eru betri en áður, samkvæmt nýrri greiningu, en verðmatsgengi félagsins hefur verið hækkað og er eftir sem áður langt yfir verðlagningu á markaði. Rekstur Icelandair verður samt áfram erfiður samtímis mikilli fjárfestingarþörf en viðsnúningur og kostnaðarlækkun er sögð vera „lífsnauðsynleg“ fyrir flugfélagið.

Reksturinn batnar en hátt elds­neytis­verð setur Icelandair þröngar skorður

Skýr merki eru um að undirliggjandi rekstur Icelandair sé að styrkjast, meðal annars vegna hærri fargjalda, betri sætanýtingar og umfangsmikilla hagræðingaraðgerða, að mati hlutabréfagreinanda, sem verðmetur félagið talsvert yfir markaðsgengi. Hátt eldsneytisverð, sterkt gengi krónunnar og kjaradeilur við flugstéttir setja rekstrinum hins vegar áfram þröngar skorður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×