Greinendur sjá fram á lægri kostnað og meiri framleiðslugetu hjá Alvotech
Greinendur erlendra fjárfestingabanka telja verulegt svigrúm til hækkunar á hlutabréfaverði Alvotech á næstu misserum samhliða minnkandi óvissu um framleiðslumál félagsins og tekjur af líftæknilyfjahliðstæðum sem þegar eru á markaði verði meiri til lengri tíma en áður var áætlað. Nýtt samþykki FDA fyrir framleiðsluferli Alvotech er einnig sagt geta lækkað framleiðslukostnað umtalsvert og aukið afkastagetuna án frekari fjárfestinga.
Tengdar fréttir
Telja Alvotech vera að komast yfir erfiðasta hjallann
Hlutabréfagreinendur telja að Alvotech sé við það að komast yfir erfiðasta hjallann eftir stormasamt ár og sjá fyrir sér verulegan tekjuvöxt á næstu árum. Jákvæð tíðindi frá bandaríska lyfjaeftirlitinu og aukin fjármögnun eru talin hafa dregið úr óvissu um reksturinn.
Spá verðmætari bylgju nýrra lyfja á markað hjá Alvotech
Alvotech er að nálgast „mikilvægan vendipunkt“ eftir margra ára uppbyggingu þar sem áhersla fjárfesta færist frá eftirlitsáhættu tengdri FDA yfir í markaðssetningu nýrra lyfja og tekjuvöxt, að sögn greinenda Bank of America, sem mæla með kaupum í frumskýrslu sinni um félagið. Hlutabréfaverð Alvotech rauk upp í dag en greinendur bandaríska bankans telja að næsta bylgja nýrra hliðstæðulyfja frá félaginu geti reynst verðmætari en þau sem hafa áður komið á markað.
Bandarískur sjóður byggt upp um fimm prósenta stöðu í kjölfar útboðs Alvotech
Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.
Sér fram á að hröð skuldalækkun geti tvöfaldað virði Alvotech
Bandaríski fjárfestingabankinn Evercore telur Alvotech talsvert undirverðlagt á markaði og að hlutabréfaverðið geti hækkað skarpt með auknum rekstrarhagnaði og minnkandi skuldsetningu. Samkvæmt nýrri greiningu, sem er sögð byggja á varfærnum forsendum, þá er samt gert ráð fyrir að markaðssetning sumra mikilvægustu hliðstæðna Alvotech muni tefjast vegna deilna um einkaleyfi og að hámarkstekjur verði verulega undir þeim áætlunum sem stjórnendur hafa áður rætt um.