Innlent

Ekkert um að fjalla

Jakob Bjarnar skrifar
Hildur Sverrisdóttir býður upp á frumlegan pistil í Morgunblaði dagsins.
Hildur Sverrisdóttir býður upp á frumlegan pistil í Morgunblaði dagsins. vísir/lýður valberg

Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins skilar auðu í umfjöllun um Alþingi, í orðsins fyllstu merkingu.

Hildur skrifar pistla með reglubundnum hætti í Morgunblaðið og í morgun var hann með all sérstæðum hætti og frumlegum. Ekki er gert ráð fyrir löngum pistli en að þessu sinni taldi hann þrjár línur og því var plássið sem undir hann var ætlaður auður.

Svona lítur frumlegur pistill Hildar út. 

Pistillinn heitir „Afsakið, hlé“ og hefst þannig: Á þessum vettvangi er ég von að fjalla um þau mál sem eru til umfjöllunar á Alþingi. Þetta haustið er lítið sem ekkert að frétta frá hinni meintu verkstjórn fyrir utan mýmörgu skattahækkanirnar sem ég hef þegar gert skil. Þessi pistill verður því ekki lengri að sinni en ég hugga mig við að það er vissulega betra þegar ríkisstjórn þessi geri minna en meira.“

Síðan er rýmið undir pistilinn autt nema síðasta línan þar sem Hildur skrifar: „Þangað til næst.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×