Sport

„Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Líf fagnar marki sínu gegn Stjörnunni í kvöld.
Líf fagnar marki sínu gegn Stjörnunni í kvöld. Vísir/Anton Brink

Það hefur heldur betur verið viðburðarík vika hjá Líf Joostdóttir van Bommel en hún skoraði sitt fyrsta mark fyrir íslenska kvennalandsliðið á dögunum og kórónaði svo vikuna með því að skora markið sem tryggði Breiðabliki Íslandsmeistaratitilinn í kvöld.

„Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu,“ sagði Líf þegar Vísir náði tali af henni í miðjum fagnaðarlátum eftir leik.

Það nægði Blikum að gera jafntefli gegn Stjörnunni í kvöld til að tryggja Íslandsmeistaratitilinn. Líf sagði spennustigið fyrir leik hafa verið gott og var ánægð með frammistöðu liðsins.

„Spennustigið var bara fínt. Við vorum með yfirburði í fyrri hálfleik en mér fannst það aðeins að detta niður í þeim seinni, en við þurftum bara að klára leikinn.“

Líf skoraði eina mark leiksins og viðurkenndi að með markinu hefði fylgt mikill léttir.

„Hún var ótrúlega góð. Þetta var mjög þægilegt. Tók léttinn af aðeins.“

Líf innsiglaði því frábært tímabil í kvöld og var hæstánægð þegar hún leit til baka yfir það.

„Bara geggjað sko. Það er bara búið að vera blómstrandi og já, bara geggjað tímabil.“

Það var vel fagnar þegar flautað var til leiksloka.Vísir/Anton Brink



Fleiri fréttir

Sjá meira


×