Sport

Mest pirrandi leik­maðurinn hrækti á and­stæðing

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gardner-Johnson á í vandræðum með skapið.
Gardner-Johnson á í vandræðum með skapið. Getty

CJ Gardner-Johnson, varnarmaður í liði Buffalo Bills í NFL-deildinni, hefur beðist afsökunar á því að hafa hrækt á Brock Bowers, leikmann Las Vegas Raiders, í gærkvöld.

Bills lenti í eilitlum vandræðum í Las Vegas í gær og heimamenn tókst að gera úr verkefninu spennandi leik. Bills unnu þó þriggja stiga sigur, 33-30.

Skömmu fyrir hálfleik, í stöðunni 13-10 fyrir Bills, var Gardner-Johnson hins vegar hent í sturtu fyrir að hrækja í átt að Brock Bowers, innherja Raiders, beint fyrir framan einn dómara leiksins.

Eðlilega var varnarmaðurinn rekinn af velli en hann baðst afsökunar á framkomu sinni eftir leik.

„Ástríða mín og keppnisskap hafa alltaf verið stór hluti af því hver ég er, en ég skil líka að það eru mörk sem aldrei ætti að fara yfir,“ skrifaði Gardner-Johnson í Instagram-sögu sína.

„Framkoma sem ég beindi að andstæðingi mínum var óviðeigandi, óþörf og endurspeglar ekki þá virðingu sem ég ber fyrir honum eða íþróttinni,“

„Það er engin afsökun fyrir gjörðum mínum og ég axla fulla ábyrgð. Sama hversu tilfinningaþrungin eða hörð keppnin verður, verð ég að gera meiri kröfur til sjálfs mín,“ skrifar Gardner-Johnson.

Ekki er um að ræða fyrsta skipti sem Gardner-Johnson missir stjórn á skapi sínu en hann gerði það einnig í leik Bills síðustu helgi. Hann gekk í raðir félagsins í sumar en hefur enst stutt víðast hvar vegna vandræða með skapið.

Hann hefur verið útnefndur mest pirrandi leikmaður deildarinnar og sá sem rífur mest kjaft samkvæmt könnunum á meðal leikmanna í deildinni.

Bills er sjöunda lið leikmannsins á þremur og hálfu ári og þá hefur hann alls verið sektaður 13 sinnum fyrir nærri 200 þúsund dali samanlagt vegna hegðunar á vellinum.

Kyle Juszczyk, leikmaður San Francisco 49ers, var ekki lengi að tjá sig um málið á samfélagsmiðlinum X. Hann sagði atvikið hafa komið ekkert á óvart og sagði Gardner-Johnson enn fremur hafa hrækt á sig í leik í fyrra.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×