Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar 19. október 2026 11:45 Nýlega birtist frétt á RÚV um einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi. Þar kom meðal annars fram að 36% þjóðarinnar upplifi sig einmana að einhverju leyti og að vísbendingar séu um að mæður í fæðingarorlofi upplifi sig oftar einmana en áður. Erlendar rannsóknir benda einnig til þess að um þriðjungur kvenna upplifi einmanaleika á meðgöngu eða fyrsta árinu eftir fæðingu. En hvers vegna upplifa svona margar mæður einmanaleika á þessu tímabili? Og hvernig má styðja betur við þær? Til að svara þessum spurningum er gagnlegt að byrja á að skoða hvers vegna félagsleg tengsl skipta okkur svona miklu máli. Við erum gerð til að tilheyra Þörfin fyrir að tilheyra, tengjast öðrum og upplifa okkur sem mikilvægan hluta af samfélagi er ekki aðeins sálfræðileg heldur á hún sér djúpar líffræðilegar rætur. Við erum líffræðilega stillt til að tengjast öðrum og skipta máli. Í gegnum mannkynssöguna hefur það stuðlað að afkomu okkar að tilheyra hópi sem veitti vernd, stuðning og aðstoð, en að vera útilokuð frá hópnum gat ógnað öryggi okkar. Það er því skiljanlegt að upplifun okkar af félagslegum tengslum og skorti á þeim geti haft áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi líkamans. Langvarandi einmanaleiki hefur verið tengdur við aukna árvekni gagnvart mögulegum ógnum og meiri virkni í streitukerfi líkamans, meðal annars drifkerfinu (e. sympathetic system) sem býr líkamann undir hættu eða virkjast við álag. Til skamms tíma eru þetta eðlileg og gagnleg viðbrögð en til lengdar geta þau haft neikvæð áhrif á svefn, líðan og heilsu. Einmanaleiki og félagsleg einangrun hafa meðal annars verið tengd við breytingar á hjarta- og æðastarfsemi og bólguþætti í líkamanum. Þetta þýðir þó ekki að það sé hættulegt að upplifa einmanaleika af og til. Rétt eins og hungur getur minnt okkur á þörfina fyrir næringu getur einmanaleiki verið merki um að við þurfum meiri eða betri félagsleg tengsl. Góðu fréttirnar eru þær að líkaminn býr einnig yfir kerfi sem hjálpar okkur að ná jafnvægi eftir álag: sefkerfinu (e. parasympathetic system), sem tengist hvíld og endurheimt. Það verður virkara þegar við upplifum öryggi, jákvæð tengsl eða nánd, og það getur dregið úr streituviðbrögðunum. Við höfum því mikið um það að segja, bæði sem einstaklingar og samfélag, að skapa aðstæður sem ýta undir tilfinninguna um öryggi og tengsl. Móðurhlutverkið og breytingar á tengslum og sjálfsmynd Að eignast barn er ein af stærstu breytingum sem margir ganga í gegnum. Daglegt líf, sambönd, sjálfsmynd og tilfinningalíf geta tekið miklum breytingum. Móðir getur upplifað djúpa ást og gleði yfir barninu sínu en á sama tíma fundið fyrir óöryggi, kvíða eða söknuði eftir fyrra lífi. Þessar breytingar geta líka haft áhrif á upplifunina af því að tilheyra. Félagsleg samskipti breytast, tengsl við vini og samstarfsfólk geta minnkað og stundum getur verið erfitt að ræða þessar tilfinningar, sérstaklega ef fólkið í kring er á öðrum stað í lífinu eða á erfitt með að skilja þessa upplifun. Í finnskri rannsókn frá 2026 lýstu nýbakaðar mæður þrenns konar einmanaleika: félagslegum einmanaleika, sem tengdist breytingum á félagslegum samskiptum, tilfinningalegum einmanaleika, sem tengdist skorti á nánum tengslum og skilningi, og tilvistarlegum einmanaleika, sem tengdist breyttri sjálfsmynd og því að vera ekki lengur séð sem einstaklingur utan móðurhlutverksins. Það er því vel hægt að vera umkringd fólki en upplifa sig samt einmana. Einmanaleiki snýst ekki aðeins um hversu mikið við umgöngumst aðra, heldur líka um gæði tengslanna og hvort við upplifum okkur séð, skilin og að við skiptum máli. Kannski þurfa mæður ekki aðeins meiri félagsskap, heldur líka fleiri tækifæri til að hitta fólk sem skilur það sem þær eru að ganga í gegnum. Tímabil þroska og styrks Móðurhlutverkið getur líka verið uppspretta mikillar gleði, nándar og tilgangs. Tengslin við barnið geta verið mikilvægur styrkleiki þessa tímabils. Þegar mæður sjá barnið sitt brosa virkjast umbunarsvæði heilans, og hormónið oxýtósín tekur þátt í líffræðilegum ferlum sem tengjast nánd og tengslamyndun. Nándin við barnið getur þannig sjálf verið uppspretta róar og öryggis. Margar mæður vaxa sem manneskjur í gegnum þetta tímabil. Þær lýsa því að þær upplifi sig sterkari, meti lífið meira, tengist öðrum dýpra og finni meiri tilgang og gleði í daglegu lífi. Í rannsókn sem fylgdi konum frá meðgöngu og fram yfir fæðingu fyrsta barns jókst þessi vöxtur jafnt og þétt, og hann var meiri hjá þeim sem voru ánægðar í parsambandinu. Önnur rannsókn sýndi meiri vöxt hjá mæðrum sem upplifðu sterk tengsl við samfélagið sitt. Það að tilheyra virðist þannig ekki aðeins vernda gegn einmanaleika heldur líka styðja við vöxtinn. Þannig geta gleði og áskoranir farið saman. Tengslin við barnið geta verið djúp og gefandi, en á sama tíma getur móðirin saknað þeirrar nándar, samveru og gagnkvæms skilnings sem felst í tengslum við aðra. Hvernig má hafa áhrif á eigin líðan? Það er ýmislegt sem við getum gert til að efla félagsleg tengsl og draga úr einmanaleika, og skrefin þurfa ekki að vera stór. Við getum haft samband við vinkonu, boðið annarri móður í göngutúr, tekið þátt í hópi mæðra eða einfaldlega gefið okkur tíma til að vera með fólki sem okkur líður vel með. En það getur líka verið gagnlegt að spyrja okkur hvers konar tengsl við þurfum. Þurfum við meiri félagsskap? Einhvern sem hlustar? Eða einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu og skilur betur það sem við erum að upplifa? Það getur verið mikill léttir að ræða við aðra móður sem þekkir þessa reynslu og finna að maður er ekki einn um hana. Stundum er líka mikilvægt að hlúa að öðrum hliðum sjálfsmyndarinnar. Fyrir sumar mæður getur það skipt miklu máli að fá áfram að skapa, sinna áhugamálum, vinna að hugmyndum eða láta gott af sér leiða á annan hátt. Rannsóknir benda til þess að það að geta haldið áfram að sinna daglegum verkefnum og hlutverkum tengist betri lífsgæðum eftir fæðingu. Þetta snýst ekki um að þurfa að afkasta meiru, heldur að fá áfram að rækta það sem veitir gleði, tilgang og tilfinningu fyrir því að maður skipti máli. Það er líka hægt að para þetta tvennt saman, félagsskap og það að taka þátt í sköpun eða áhugamáli. Í breskri rannsókn tóku mæður sem upplifðu einmanaleika og einkenni fæðingarþunglyndis þátt í sex vikna lagasmíðanámskeiði á Zoom. Einmanaleikinn minnkaði marktækt strax á þriðju viku, einkenni þunglyndis minnkuðu og mæðurnar upplifðu meiri tengsl við aðra. Hvað getur samfélagið gert og hvað segja rannsóknir? Þótt við getum sjálf tekið mikilvæg skref þá skiptir umhverfið líka miklu máli. Það er auðveldara að mynda tengsl þegar tækifærin eru til staðar, aðgengileg og passa inn í líf með ungabarn. Hér á landi er margt gott gert: mæðravernd, ung- og smábarnavernd með heimavitjunum, foreldramorgnar og krílastundir á bókasöfnum. Þær sem þurfa meiri stuðning geta leitað til heilsugæslunnar eða Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, sem er opinn allan sólarhringinn. Dæmi um aðrar leiðir sem hafa skilað árangri erlendis: Í Japan fengu verðandi mæður aðstoð frá heilbrigðisstarfsfólki í gegnum smáforrit, þær upplifðu marktækt minni einmanaleika þremur mánuðum eftir fæðingu. Í Ástralíu hefur ungbarnavernd lengi boðið öllum foreldrum fyrsta barns í ókeypis hópa eftir hverfum undir stjórn hjúkrunarfræðinga. Mæður lýsa minni einangrun og flestir hópar héldu áfram að hittast eitt og hálft til tveimur árum síðar. Í íranskri rannsókn tóku nýbakaðar mæður með fæðingarþunglyndi þátt í samkenndarmeðferð í hópi, þar sem unnið var með sjálfsgagnrýni og samkennd í eigin garð. Einmanaleiki þeirra minnkaði marktækt og sjálfsmat þeirra batnaði. Við höfum því góðan grunn til að byggja á og næsta skref gæti verið að nýta þau tækifæri sem þegar eru til staðar enn markvissar til að styrkja félagsleg tengsl mæðra. Til dæmis mætti tengja mæður saman strax á meðgöngu, styðja við áframhaldandi samskipti í litlum hópum eftir fæðingu og auðvelda þeim sem upplifa einmanaleika að finna jafningjastuðning við hæfi. Tekið saman Þegar á heildina er litið benda tölurnar til þess að einmanaleiki sé töluverður meðal nýbakaðra mæðra. Það er svo sannarlega gefandi og stórt hlutverk að verða móðir og því skiljanlegt að því fylgi ýmsar upplifanir, enda fylgja þessu tímabili bæði líffræðilegar og sálfræðilegar breytingar. Þetta er líka tímabil sem getur falið í sér styrk og þroska. Hver móðir hefur sínar þarfir og sitt bakland. Það skiptir máli að hlusta á sjálfa sig, mæta eigin þörfum af mildi og leyfa sér að þiggja stuðning. En ábyrgðin á ekki að hvíla á mæðrunum einum. Samfélagið þarf líka að skapa aðstæður sem auðveldar mæðrum að mynda tengsl, finna stuðning og upplifa að þær tilheyri. Höfundur er sálfræðingur og doktor í lífeðlislegri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Þóra Sveinsdóttir Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun