Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fall­baráttan tók ó­vænta stefnu

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik KA og Vals í dag
Frá leik KA og Vals í dag Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Þrír athyglisverðir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. KR tryggði annað sæti deildarinnar og í neðri hlutanum áttu sér stað óvæntar sviptingar sem breyta landslaginu fyrir lokaumferð deildarinnar. 

KA er í fallsæti fyrir lokaumferð deildarinnar eftir þungt 4-1 tap gegn Val á útivelli í gær. Valsmenn gerðu út um leikinn í seinni hálfleik. Örlög KA-manna eru ekki bara í þeirra höndum fyrir lokaumferðina

Klippa: Valur - KA 4-1

Þórsarar unnu gífurlega mikilvægan 3-1 sigur gegn Stjörnunni er liðin mættust á Akureyri í gær. Sigurinn, sem og tap KA gegn Val, sér til þess að Þórsarar lyfta sér upp úr fallsæti og eru með örlögin í sínum höndum fyrir lokaumferð deildarinnar.

Klippa: Þór Ak. - Stjarnan 3-1

Í efri hluta deildarinnar tryggði KR sér annað sæti Bestu deildarinnar með 3-2 sigri gegn Keflavík á útivelli í krefjandi aðstæðum. 

Klippa: Keflavík - KR 2-3



Fleiri fréttir

Sjá meira


×