Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar 16. október 2026 10:47 Nikótínvörur eru ört vaxandi ógn við heilsu okkar, ekki síst heilsu ungs fólks. Þótt dregið hafi mjög úr sígarettureykingum þá hefur notkun annarra nikótínvara, svo sem rafretta og nikótínpúða, aukist verulega, ekki síst meðal ungmenna. Markaðssetning þessara vara getur auðveldlega skapað þá ranghugmynd að þær séu nánast skaðlausar. Því fer fjarri og ætti það að vera augljóst ef litið er til innihaldsefnanna. Tökum nikótínpúða sem dæmi. Þessir púðar eru gerðir úr trefjum sem geta ert viðkvæma slímhúð munnsins, valdið blöðrum og þykknun á slímhúð. Úr púðunum losna svo ýmis efni til viðbótar við nikótín. Þar má nefna formaldehíð og króm. Nikótín hefur almennt skaðleg áhrif á munn- og tannheilsu óháð því hvernig það berst í líkamann. Nikótín dregur úr blóðflæði og framleiðslu munnvatns en hvoru tveggja getur aukið hættu á tannskemmdum. Meira um áhrif nikótíns hér á eftir. Vísbendingar eru um að notkun púðanna geti aukið hættu á krabbameini í munnholi en frekari rannsókna er þörf til að hægt sé að fullyrða slíkt. Hið sama á við um rafrettur, þó svo gufa af þeim sé almennt talin innihalda færri eiturefni en venjulegur sígarettureykur. Auk nikótínsins andar notandinn að sér ýmsum skaðlegum efnum á borð við formaldehíð, ásamt þungmálmum, svo sem nikkel, blý og króm. Því til viðbótar berast örfínar agnir djúpt ofan í lungun og geta þar valdið ertingu og öðrum skaða. Loks eru það bragðefnin, en rannsóknir hafa sýnt möguleg tengsl sumra þeirra við alvarlega lungnasjúkdóma. Af öllum þessum sökum eru nikótínpúðar, rafrettur og skyldar vörur skaðlegar heilsu okkar. Þessi skaðlegu áhrif eiga sérstaklega við um börn, ungmenni og á meðgöngu. Áhrif nikótíns á börn og ungmenni Í nýlegri skýrslu Vidensråd for Forebyggelse, Nikotinbrug blandt børn og unge: Konsekvenser og forebyggelse kemur fram að ungmenni eru sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum nikótíns þar sem heilinn er jú ekki fullþroskaður fyrr en um 25 ára aldur eða jafnvel síðar. Nikótín getur truflað þroska heilans hvað varðar t.d. einbeitingu, námsgetu, minni, hvatastjórnun og ákvarðanatöku. Þessar truflanir, t.d. á þroska hvatastjórnunar og umbunarkerfis heilans, geta leitt til þess að ungir einstaklingar ánetjast nikótíni auðveldar en fullorðnir og eiga oft erfiðara með að hætta notkun. Jafnframt benda rannsóknir til tengsla milli nikótínnotkunar og lakari geðheilsu, meðal annars aukinna einkenna kvíða og þunglyndis. Vaxandi notkun nikótínpúða og rafretta er veruleg lýðheilsuáskorun. Samkvæmt skýrslu frá norrænu velferðarmiðstöðinni (Nordic Welfare Centre) frá árinu 2025 hefur notkun nikótínpúða aukist verulega á norðurlöndum. Gögnin sýna að um það bil þriðjungur íslenskra ungmenna á aldrinum 18-24 ára notar nikótínpúða. Notkunin virðist heldur minni í Noregi (30%) og í Svíþjóð (27%). Dönsk ungmenni nota púðana mun síður (16%) og í Finnlandi er notkunin um 9%. Mikilvægt er þó að hafa í huga að þessar tölur byggja á mismunandi könnunum og gefa því ekki nákvæman samanburð milli landa, heldur sýna að nikótínpúðanotkun er orðin algeng meðal ungs fólks í mörgum Norðurlandanna og virðist sérstaklega útbreidd á Íslandi, í Noregi og í Svíþjóð. Evrópskar skólakannanir benda jafnframt til þess að rafrettunotkun sé orðin jafnalgeng eða algengari en sígarettureykingar meðal unglinga í mörgum löndum. Þessar niðurstöður benda til þess að þótt hefðbundnar reykingar fari minnkandi sé nikótínnotkun meðal ungs fólks enn verulegt lýðheilsuviðfangsefni. Þess vegna er lögð æ meiri áhersla á að koma í veg fyrir alla nikótínnotkun meðal ungs fólks, ekki aðeins sígarettureykingar. Þetta er gert meðal annars með því að setja aldurstakmörk fyrir kaup á þessum vörum, takmarka markaðssetningu og notkun bragðefna, hækka verð á nikótínvörum, tryggja nikótínlaust skólaumhverfi og veita markvissa fræðslu um skaðsemi nikótíns og hættuna á fíkn. Mikilvægi betri löggjafar í þágu barna og ungmenna Það er því sérstakt fagnaðarefni að nú er stefnt að nýrri löggjöf sem styður sérstaklega við þessi atriði. Það er jákvætt að ráðherra heilbrigðismála geti með reglugerð takmarkað notkun bragðefna sem höfða til barna og ungmenna, hindrað að umbúðir höfði sérstaklega til barna og ungmenna og geti einnig takmarkað hámarksmagn nikótíns í þessum vörum. Í Danmörku er hámarksmagn nikótíns í nikótínpúðum 9mg/g en hérlendis er ríflega tvöfalt hærra hámarksmagn nú leyfilegt eða 20 mg/g. Þetta er mikilvægt ekki síst í ljósi þess að litríkar umbúðir með ávaxta- og sælgætislykt með háum nikótínstyrk geta og hafa valdið eitrunarhættu fyrir ung börn. Eins og hér er rakið eru tóbaks- og nikótínvörur sérstök ógn við heilsu barna og ungmenna. Það frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi felur í sér fjölmörg atriði sem vinna gegn þessari áhættu. Um er að ræða veigamikið lýðheilsumál þar sem stuðlað er að betri heilsu fyrir börnin okkar allra. Höfundur er landlæknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein María Heimisdóttir Tóbak Rafrettur Börn og uppeldi Nikótínpúðar Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun