Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 13. október 2026 08:21 Rússíbaninn Goliath var opnaður árið 2006 og samkvæmt vefsíðu garðsins nær hann 60 metra hæð. Vísir/AP Einn maður er látinn og nokkrir slösuðust í rússíbanaslysi í skemmtigarðinum Six Flags Over Georgia í Georgíu í Bandaríkjunum í gær. Lögreglan í Cobb-sýslu rannsakar nú dauðsfallið og orsök slyssins. Í myndbandi má sjá að rússíbaninn var stöðvaður miðja vegu og aðstoða þurfti gesti úr honum.
Í samtali við erlenda miðla sögðust sjónarvottar hafa séð mann kastast úr Goliath-rússíbananum en þær frásagnir hafa ekki fengist staðfestar samkvæmt breska ríkismiðlinum BBC. Loftmyndir teknar úr fréttaþyrlu sýna starfsmenn aðstoða farþega úr rússíbananum sem virðist hafa verið stöðvaður miðja vegu. Talsmaður skemmtigarðsins sagði í yfirlýsingu að hugur starfsmanna væri hjá þeim sem ættu um sárt að binda og rannsókn á slysinu væri hafin. Í frétt BBC segir að ekki hafi enn verið tilgreint hvernig manneskjan lést en vitni hafa greint frá því að hafa séð manninn kastast úr sæti sínu. Í frétt BBC er haft eftir svæðismiðlinum 11Alive að maðurinn hafi fallið úr rússíbananum á þak draugahúss í skemmtigarðinum. Það hefur þó ekki verið staðfest. Tuttugu ára rússíbani Í yfirlýsingu frá Six Flags sagði talsmaður að starfsfólk hans og yfirvöld á staðnum hefðu brugðist við án tafar og að þau ynnu saman að rannsókn á atvikinu. Michael Owens borgarstjóri Mableton sagði að yfirmaður almannaöryggismála borgarinnar væri í samráði við lögregluna á staðnum og öryggisgæslu garðsins vegna málsins. Rússíbaninn Goliath var opnaður árið 2006 og samkvæmt vefsíðu garðsins nær hann 60 metra hæð, steypist niður 51 metra, fer í 540 gráðu gormlaga beygju og nær allt að 112 kílómetra á klukkustundar hraða. Á „spennukvarða“ sínum setur Six Flags Goliath á stig fjögur af fimm. Six Flags er stærsti rekstraraðili skemmtigarða í Norður-Ameríku og rekur tuttugu skemmtigarða, 14 vatnrennibrautargarða og níu orlofsstaði í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó. Lokuðu öðrum rússíbana Atvikið á sér stað aðeins nokkrum vikum eftir að einn af görðum fyrirtækisins í suðurhluta Kaliforníu tilkynnti að hann myndi loka hinum vinsæla rússíbana X2 eftir að meira en hundrað manns héldu því fram að þeir hefðu hlotið heilaskaða af völdum hans. Six Flags sagði að tækið hefði staðist ýmsar öryggisprófanir en að ákveðið hefði verið að taka það úr notkun vegna þess að það væri „það rétta í stöðunni“.
Bandaríkin Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira