Sport

Fyrsta til að vinna á heima­velli og fagnaði með söng

Andri Broddason skrifar
Qinwen Zheng var skiljanlega hæstánægð með sigurinn á heimavelli.
Qinwen Zheng var skiljanlega hæstánægð með sigurinn á heimavelli. Lintao Zhang/Getty Images

Qinwen Zheng  kom öllum að óvörum og vann opna kínverska mótið í tennis. Hún er fyrsta kínverska konan til þess að vinna mótið og fagnaði með því að syngja fyrir áhorfendur.

Zheng var ekki búin að vinna sér inn keppnisrétt á mótinu en var boðið að keppa. Hún er númer 54 í heiminum og mætti Mirru Andreevu í úrslitaleiknum.

Heimakonan náði að vinna leikinn í aðeins tveimur settum en hún var ekki líkleg til þess að gera það fyrir leik þar sem Andreeva er búin að vinna sig í þriðja sæti heimslistans. Eftir að Zheng náði sigurstiginu féll hún til jarðar og trúði varla að hún hefði unnið mótið.

Zheng hefur átt erfiða mánuði þar sem hún fór í aðgerð á olnboga á síðasta ári og er búin að vera lengi að jafna sig á því. Áhorfendur náðu þó að styðja samlanda sinn áfram og náði hún að sigla sigrinum heim.

Eftir sigurinn ákvað hún að taka lagið fyrir áhorfendur en það má segja að frammistaða hennar á tennisvellinum sé betri en frammistaða söngsins. Það getur þó enginn tekið af henni gríðarlega flottan sigur á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×