Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. október 2026 12:21 Vilborg Ása telur samkomulagið fela í sér mikil tíðindi. Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díseolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um samkomulagið við Rússa á samfélagsmiðli sínum Truth Social í gærkvöldi. Samkomulagið felur meðal annars í sér að Rússar geti flutt út þrjú hundruð þúsund tonn af díselolíu á alþjóðamarkaði þegar í stað, fimm hundruð þúsund lítra í nóvember og aftur milljón tonn af olíu í desember. Fullyrti Bandaríkjaforseti að eldsneytisverð á heimsvísu myndi með þessu lækka en stutt er í þingkosningar í Bandaríkjunum þar sem útlit hefur verið fyrir að Repúblikanar missi meirihluta sinn í báðum deildum þingsins. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir samkomulagið fela í sér mikil tíðindi. „Þetta er ákveðið áfall fyrir Evrópu. Þarna er bara beinlínis verið að grafa undan refsiaðgerðum Evrópu og Bandaríkin voru hluti af því. En núna fara þau svona á móti, móti hagsmunum Evrópu og Úkraínu.“ Ljóst sé að markmið Bandaríkjaforseta sé að hafa áhrif á eldsneytisverð og verðbólgu í Bandaríkjunum fyrir miðannakosningar í nóvember. Sérfræðingar telji hinsvegar að aðgerðirnar muni ekki skipta eins miklu í efnahagslegu tilliti líkt og Bandaríkjaforseti bindi vonir við. „Þetta er einfaldlega enn eitt dæmið um það að Evrópulönd standa ein með Úkraínu, að það er ekki hægt að treysta á Bandaríkin þegar kemur að stríðinu í Úkraínu.“ Þannig sé samkomulagið enn eitt dæmið um það núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum meti vestræna samvinnu ekki eins mikils og fyrri stjórnvöld hafi gert frá lokum síðari heimsstyrjöld. „Eins og er er stærsta ógnin sem steðjar að Evrópu Rússland, aðgerðir Rússlands í Úkraínu og víðar um alla Evrópu, fjölþáttaógnir sem beinast gegn Evrópuríkjum og þetta er enn eitt dæmið um það að við þurfum að finna út úr því sjálf.“ Rússar hafi undanfarna mánuði fært sig upp á skaftið með fjölþáttaaðgerðum í Evrópu, meðal annars í Þýskalandi og Póllandi. Hvaða áhrif heldurðu að þetta samkomulag muni hafa á hegðun Rússa? „Þetta gefur Pútín byr undir báða vængi. Þetta er ekki líklegt til að draga úr vilja Pútíns til að halda áfram sínum undirgrafningi í Evrópu, að grafa undan öryggi Evrópuríkja.“
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Úkraína Efnahagsmál Þýskaland Pólland Bensín og olía Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira