„Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. október 2026 08:55 Vorið Vaknar (e. Spring Awakening) er rokksöngleikur eftir Steven Sater. Myndó Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir í kvöld rokksöngleikinn Vorið vaknar. Ungt fólk í uppreisn er þar í aðalhlutverki og fléttar verkið saman siðferði, kynlíf og rokk. Einn forsvarsmanna sýningarinnar segir það lýðheilsumál að rækta bæjar- og áhugaleikhús landsins.
Vorið vaknar er samið af Steven Sater og byggir á samnefndu þýsku leikriti Frank Wedekind frá 1891. Tónlistin var samin af Duncan Sheik, sem lést fyrir tæpum mánuði. Verkið hefur verið sett upp af hinum ýmsu leikhópum hér á landi síðustu ár, til að mynda af Leikfélagi Akureyrar og Herranótt í Menntaskólanum í Reykjavík og nú spreyta Mosfellingar sig á þessu fræga verki. „Ferlið hefur gengið rosalega vel en við erum ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og ætlum okkur mikið á aðeins sex vikum. Við höfum lagt mikið upp úr því að hrista hópinn vel saman, höldum hittinga utan æfinga og þetta er orðið smá eins og einn stór vinahópur enda erum við að eyða nær öllum frítíma okkar saman. Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum hvert frá öðru eftir frumsýningu,“ segir Brynja Sigurðardóttir, búninga- og leikmyndahönnuður sýningarinnar, í samtali við fréttastofu. Hér fyrir neðan má sjá tónlistarmyndband við lagið Djöfulsins fokk sem sungið er í sýningunni. Hljómsveit á hverri sýningu Yfir fjörutíu manns koma að sýningunni, þar á meðal sjö manna hljómsveit sem spilar undir með hverju einasta söngatriði. „Það er allt önnur tilfinning að vera með lifandi flutning á tónlist og þá sérstaklega lifandi strengjasveit. Það dýpkar verkið og tónlistin verður svo miklu meira töfrandi. Svo er líka ofboðslega skemmtilegt að fá fleira fólk í leikhúsið. Tónlistin í verkinu er þannig að það mæðir mikið á söng og þá sérstaklega samsöng og við erum með flóknar kórútsetningar og lifandi flutningur tónlistar lyftir mjög mikið undir sönginn,“ segir Brynja. Söngleikurinn var frumsýndur árið 2006 á Broadway og hlaut 8 Tony verðlaun, meðal annars fyrir besta söngleik ársins.Myndó Tilvalið fyrir rokkunnendur Sýningin sé fyrir alla sem hafa gaman af söngleikjum, sérstaklega ungt fólk. „Það er mikið um tónlist, söng og dans og því tilvalið fyrir tónlistar- og rokkunnendur að skella sér í leikhús,“ segir Brynja. Söngleikurinn er frumsýndur í kvöld.Myndó Leikfélag Mosfellssveitar var stofnað 1976 í Hlégarði en er nú með aðsetur í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Brynja segir Mosfellinga mjög duglega að mæta í leikhús. „Áhugaleikhúsin eru svo áhugaverður vettvangur þar sem hópur af oft mjög ólíku fólki kemur saman til að skapa eitthvað magnað fyrir hvert annað og áhorfendur. Við höfum alltaf lagt áherslu á að leikhúsið sé samfélagsverkefni og staður þar sem öll fá að tilheyra og vera í skapandi samstarfi,“ segir Brynja. Dóra Wild og Valgeir Skagfjörð hafa tekið þátt í starfi leikfélagsins til margra ára.Myndó Ástríða og metnaður Þegar fólk geri hlutina af ástríðu og til að stíga út fyrir þægindarammann verði til svakalegur metnaður. „Það er bókstaflega lýðheilsumál að rækta svona starfsemi svo hún vaxi. Það er líka skemmtilegt að minnast á það að margir af þeim leikurum og listrænum stjórnendum sem við þekkjum úr stóru leikhúsunum í dag hófu feril sinn í áhugaleikfélögum. Annar leikstjóranna fyrir Vorið vaknar, Elísabet Skagfjörð, byrjaði til að mynda á barnanámskeiðum hjá okkur í leikfélaginu og er nú komið með meistaragráðu í leiklist og fékk tilnefningu til Grímunnar fyrr á árinu,“ segir Brynja. Elísabet Tinna Haraldsdóttir og Kristján Nói Kristjánsson.Myndó „Verkið fléttar saman siðferði, kynlíf og rokk í sögu sem snertir hjartarætur,“ segir Brynja.Myndó
Mosfellsbær Leikhús Tónlist Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Fleiri fréttir Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell Sjá meira