Innlent

Slökkvi­lið í út­kalli á Hring­braut

Agnar Már Másson skrifar
Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu bregst við útkallinu.
Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu bregst við útkallinu. Vísir/Anton Brink

„Við erum að bregðast við reyk og hugsanlegum eldi á Hringbrautinni,“ segir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi spurður út í aðgerðir slökkviliðs í Vesturbæ sem standa nú yfir. 

Varðstjórinn gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu en slökkviliðsbíll auk sjúkrabíla sáust á ferð við Hringbraut í vesturborg Reykjavíkur um rétt fyrir hálfníu í kvöld.

Frétt verður uppfærð þegar frekari upplýsingar berast.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×