Fótbolti

Hafnaði Ís­landi og er byrjaður með Banda­ríkjunum

Sindri Sverrisson skrifar
Cole Campbell í sínum fyrsta A-landsleik fyrir Bandaríkin. Liðið vann Kanada 1-0 í vináttulandsleik.
Cole Campbell í sínum fyrsta A-landsleik fyrir Bandaríkin. Liðið vann Kanada 1-0 í vináttulandsleik. Getty/Omar Vega

Fótboltamaðurinn ungi Cole Campbell fékk draum sinn uppfylltan í nótt þegar hann spilaði í fyrsta sinn með bandaríska A-landsliðinu í fótbolta í 1-0 sigri gegn Kanada á Allianz Field í Minnesota.

Campbell er fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum en á íslenska móður, fótboltakonuna fyrrverandi Rakel Björk Ögmundsdóttur, og heimsótti Ísland reglulega. Hann náði svo að spila fyrir FH og Breiðablik hér á landi áður en hann hélt í atvinnumennsku til Þýskalands aðeins sextán ára gamall, til stórliðs Dortmund.

Campbell hefur líkt og mamma sín klæðst íslensku landsliðstreyjunni því hann á að baki sjö leiki og tvö mörk fyrir yngri landslið Íslands. Hann kaus svo að spila frekar fyrir Bandaríkin og hefur nú leikið sinn fyrsta A-landsleik. Leikurinn við Kanada var að vísu bara vináttulandsleikur og samkvæmt reglum FIFA gæti Campbell enn snúist hugur og spilað fyrir Ísland en hann hefur sjálfur sagst kjósa frekar Bandaríkin og viðbrögðin eftir leik undirstrikuðu það.

„Það er draumur að rætast. Algjörlega stórkostleg tilfinning að spila fyrsta leik fyrir mitt land. Takk allir fyrir stuðninginn. Þetta hefur verið alveg stórkostlegt,“ sagði Campbell á samfélagsmiðlum bandaríska landsliðsins.

Í ágúst sagði hann í viðtali: „Ég hef þegar ákveðið að skipta yfir til Bandaríkjanna. Það eru margar ólíkar ástæður fyrir því en framtíð mín er með Bandaríkjunum. Að því sögðu þá eru engir bakþankar. Þetta er ritað í stein.“

Samkvæmt einkunnagjöf ESPN var Campbell varfærinn í leiknum í nótt en skilaði nokkrum sendingum á þeim tíma sem Mauricio Pochettino skammtaði honum en Campbell lék tæpan hálftíma.

Goal.com segir að Campbell hefði eflaust verið búinn að spila fyrr í þessari landsleikjatörn en að minni háttar meiðsli hefðu komið í veg fyrir það. Miðillinn sagði hann ekki hafa náð að sýna sömu takta og í upphafi leiktíðar með Elversberg í Þýskalandi, þar sem hann hefur þegar skorað eitt deildarmark í fjórum leikjum, en að mikilvægast væri að hann væri núna búinn að þreyta frumraun sína fyrir landsliðið.

Justin Ellis skoraði sigurmark Bandaríkjanna í nótt á 29. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×