Viðskipti innlent

Á þriðja tug sagt upp hjá Foss­hóteli Rauðará

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fosshótel Rauðará við Rauðárárstíg í Reykjavík.
Fosshótel Rauðará við Rauðárárstíg í Reykjavík. Íslandshótel

Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári.

Þetta staðfestir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við Vísi. RÚV greindi fyrst frá. Davíð segir að um sé að ræða 26 starfsmenn að undanskildum hótelstjóra sem sinni sama starfi á öðru hóteli keðjunnar, Fosshóteli Lind, í sömu götu.

„Við erum að fara að loka hótelinu 1. nóvember því við ætlum að taka það allt í gegn og opna undir nýju vörumerki,“ segir Davíð Torfi í samtali við fréttastofu.

„Við tilkynntum fólkinu þetta snemma í upphafi árs.“

Uppsagnirnar hafa því legið fyrir og þær komið til framkvæmda yfir lengri tíma. Fyrstu uppsagnirnar voru í sumar en hefur starfsmannanna hafa fengið starf á öðrum hótelum fyrirtækisins. 

Þær hafa komið til framkvæmda yfir lengri tíma og voru fyrstu uppsagnirnar í sumar. Hluti starfsmannanna hafi fengið starf á öðrum hótelum fyrirtækisins.

Gert er ráð fyrir því að framkvæmdirnar taki eitt ár og verður hótelið opnað undir nýju vörumerki sem Íslandshótel mun kynna til sögunnar þegar að því kemur.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×