Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar 4. október 2026 17:02 Ísland viðheldur Evrópumeti sínu í skattlagningu á áfenga drykki, miðað við fjárlagafrumvarp ársins og tengd frumvörp. Raunar finnast ekki dæmi á Vesturlöndum um ríkari skattagleði stjórnvalda þegar kemur að áfengum drykkjum. Skoðum nokkur dæmi. Léttvín: Skattar nærri tvöfalt innkaupsverð Meirihluti 30 Evrópuríkja, sem Félag atvinnurekenda skoðaði, leggur engan sértækan áfengisskatt á léttvín, heldur aðeins virðisaukaskatt. Það er í takt við það viðhorf í þessum ríkjum að léttvínsflaska sé fyrst og fremst hluti af góðri máltíð. Það eru einkum norðlægari Evrópuríki, sem leggja sérstakan áfengisskatt á léttvín, en eins og myndin hér að neðan sýnir, sker Ísland sig mjög rækilega úr varðandi skatt á flöskuna með helgarsteikinni. Tölurnar í grafinu eru í evrum og miðast við 75 cl flösku sem kostar fimm evrur fyrir skatta og inniheldur 12% vínanda. Rétt er að taka fram að virðisaukaskattur á áfenga drykki er lægri á Íslandi en í flestum öðrum Evrópuríkjum og þess vegna er horft bæði á áfengisskatt og virðisaukaskatt til að hafa samanburðinn sem sanngjarnastan. Eingöngu er horft á þessa skatta en ekki t.d. skilagjöld, sem lögð eru á umbúðirnar. Samanlagður áfengisskattur og virðisaukaskattur á Íslandi slagar hátt í tvöfalt verð flöskunnar fyrir skatt. Áfengisskatturinn einn á Íslandi er talsvert hærri en samanlagður áfengisskattur og virðisaukaskattur í Noregi, sem er næstskattaglaðasta Evrópuríkið þegar kemur að áfengissköttum. Munurinn á áfengisskattinum á Íslandi og í öðrum Evrópuríkjum, sem á annað borð leggja hann á léttvín, er frá því að vera tvöfaldur upp í að telja í tugum. Sterkt áfengi: Glæsilegasta Evrópumetið Öll Evrópuríki telja ástæðu til að leggja áfengisskatt á sterkt áfengi. Í dæminu hér að neðan er miðað við 70 cl flösku af 40% vodka, sem kostar 10 evrur í innkaupum — sem er raunar hátt verð fyrir vodkaflösku og skekkir samanburðinn Íslandi í hag, því að áfengisskatturinn leggst á áfengiseiningu en fer ekki eftir innkaupsverði. Hér kemst þó ekkert Evrópuríki með tærnar þar sem Ísland hefur hælana. Samanlögð skattlagning á flöskuna er á Íslandi 4,5-falt innkaupsverð hennar. Skattarnir eru um 40% hærri en í Noregi, tvöfalt hærri en í Finnlandi og hátt í fimmfalt hærri en í Danmörku, svo dæmi séu tekin. Ef við horfum á Ítalíu og Spán er skattlagningin hér á landi um það bil áttföld. Bjór: Eingöngu Noregur jafnar metið Horfum þá á skattlagningu á 33 cl bjórflösku, sem er með 5% áfengisinnihaldi og kostar eina evru fyrir skatta. Hér tekst Noregi að mjaka sér upp fyrir Ísland og samanlagður áfengis- og virðisaukaskattur er einu evrusenti hærri hjá frændþjóðinni. Ísland og Noregur hafa talsvert forskot á Finnland, sem er þriðja Evrópuríkið sem nær að hafa skattlagninguna hærri en innkaupsverð vörunnar. Íslenzki áfengisskatturinn er hins vegar mun hærri en sá norski. Skattlagningin er tvöföld á við t.d. Svíþjóð og Írland og svo hækkar margfeldið eftir því sem neðar dregur í töflunni. Hver eru rökin fyrir miklu hærri sköttum á Íslandi? Rökin sem hafa verið færð fram fyrir háum áfengissköttum eru fyrst og fremst að með þeim sé hægt að draga úr áfengisneyzlu í þágu lýðheilsumarkmiða. Rannsóknir styðja að verð og skattlagning geti haft slík áhrif. Þeirri spurningu er hins vegar ósvarað af hálfu stjórnvalda hvað réttlæti að skattlagningin þurfi að vera margfalt hærri hér á landi en í þeim ríkjum sem við berum okkur einkum saman við. Það er ekki nóg að sýna fram á að áfengisskattar geti haft áhrif á neyzlu; rökstyðja þarf hvers vegna íslenzka skattstigið þurfi að vera þetta miklu hærra en í nágrannalöndunum til að ná þeim lýðheilsumarkmiðum sem að er stefnt.Áhrifin á íslenzka neytendur og íslenzkt atvinnulíf eru hins vegar augljós. Samkvæmt evrópskum verðsamanburði var verð á áfengum drykkjum á Íslandi árið 2024 um 185% yfir meðaltali ESB og það hæsta í Evrópu. Hinir háu áfengisskattar bitna einna harðast á veitingageiranum, þar sem rekstur flestra fyrirtækja er erfiður, og hafa neikvæð áhrif á samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar. Þá eru ótalin áhrifin á innlenda áfengisframleiðslu, sem er vaxandi atvinnugrein og skapar störf víða um land.Frystum áfengisskattanaSamkvæmt fjárlagabandormi ársins á enn að hækka áfengisskattana, um 5,2%. Ætla má að sú hækkun verði þó takmörkuð við 2,5% miðað við yfirlýsingar forsætisráðherra. Félag atvinnurekenda hefur lagt til að krónutala áfengisskatta verði fryst næstu árin, þannig að þeir þokist smátt og smátt nær einhverju sem telja má skynsamlegt í samanburði við nágrannalöndin. Það væri sanngjarnt, bæði gagnvart neytendum og íslenzku atvinnulífi.Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Áfengi Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun