Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Freyja Þórisdóttir skrifar 4. október 2026 10:30 Rektor Cornell-háskóla hefur heitið auknu gagnsæi en áður hafði háskólinn gefið út, eftir að málið komst í heimsfréttirnar, að málið yrði tekið til skoðunar að nýju. AP Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, hefur tjáð sig um hópnauðgun á konu í skólanum árið 2024. Hann segir málið vekja verulegan óhug og hefur heitið því að aðstoða við aukið gagnsæi í ljósi vaxandi reiði vegna meðferðar skólans á málinu.
Kemur þetta fram í átta mínútna löngu myndbandi sem birt var á vef skólans en þar segist Kotlikoff fá „verki í hjartað þegar ég hugsa um það sem hún upplifði“. Vekji upp spurningar Hann lýsti síðustu viku sem einni þeirri erfiðustu í sögu háskólans og sagði að hún myndi hafa áhrif á háskólann um ókomin ár. „Hún vekur upp átakanlegar og erfiðar spurningar um kynferðisofbeldi, mannfyrirlitningu og þætti í partímenningu, áfengis- og vímuefnaneyslu,“ sagði hann. Hér fyrir neðan má sjá hluta af myndbandinu sem birt var á síðu háskólans. Hópnauðgunin á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralagsins Chi Phi við skólann þann 19. október 2024. Sjö menn eru sakaðir um að nauðga konunni klukkustundum saman. Ekki kært í málinu Fram hefur komið að konan, sem í dómsskjölum er nefnd Jane Doe, hafi tilkynnt nauðgunina til lögreglu og skólans nokkrum vikum eftir árásina en saksóknari í Tompkins-sýslu ákvað að ákæra ekki í málinu. Mennirnir sættu agaviðurlögum í skólanum eins og að taka aukakúrs eða skrifa ritgerð auk þess sem einn var rekinn úr skólanum og einhverjir þeirra tímabundið. Þá var greint frá því að mennirnir hefðu auglýst það í hópspjalli að konan væri uppi í húsinu og öðrum mönnum var boðið að vera með. Samkvæmt því sem hefur komið fram voru 57 karlmenn í spjallinu og sjö tóku þátt. Enginn þeirra 57 sem sáu boðið tilkynnti það. Athygli á meðferð Cornell-háskóla á málinu jókst eftir að Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, sagði að nýbirtar upplýsingar hefðu grafið undan trausti hennar á saksóknara á svæðinu, sem upphaflega neitaði að gefa út ákæru. Hochul skipaði í kjölfarið Letitiu James ríkissaksóknara sem sérstakan saksóknara til að taka yfir sakamálarannsóknina og sagði að hún myndi „ekki leyfa neinum að sópa þessu máli undir teppið“. „Unga konan sem er miðpunktur þessa máls á skilið að vita að öllum staðreyndum verður snúið við og réttlætinu fylgt eftir,“ sagði Hochul í yfirlýsingu.
Háskólar Bandaríkin Hópnauðgun við Cornell-háskóla Tengdar fréttir Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. 28. september 2026 10:58 Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það. 1. október 2026 08:07 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. 28. september 2026 10:58
Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það. 1. október 2026 08:07