Hópnauðgun við Cornell-háskóla

Fréttamynd

Gera ó­háða rann­sókn á hóp­nauðgun við há­skólann

Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það.

Erlent
Fréttamynd

Cornell og klefamenning

Fyrir skömmu skrifaði ég greinina Hvar eru góðu mennirnir? Ég var ekki að spyrja hvar þeir væru af því að ég teldi þá ekki til. Ég var að spyrja hvar þeir væru þegar á reynir. Hvar eru karlarnir, sem myndu sjálfir aldrei beita konu ofbeldi, þegar vinur þeirra gerir það? Þegar þeir heyra eitthvað?

Skoðun
Fréttamynd

Sjö sakaðir um að nauðga sam­nemanda klukku­stundum saman

Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. 

Erlent