Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. október 2026 14:17 Arnar segir niðurstöðurnar tilefni fyrir foreldra sem og stjórnvöld til að staldra við. Kristinn Ingvarsson Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna að íslenskir karlmenn hafi íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum er viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag að mati doktorsnema sem kallar eftir viðbrögðum.
Frétt uppfærð 6. október 13:54: Íslenskir félagsvísindamenn setja mikla fyrirvara við rannsókn sem þessi frétt fjallar um. Ástæður þess eru dregnar saman í fréttinni hér fyrir neðan. Upprunalega frétt má lesa hér fyrir neðan. Upprunaleg frétt fyrir uppfærslu: Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um var að ræða könnun sem gerð var á þessu ári meðal karla og kvenna á Norðurlöndum þar sem meðal annars var spurt að því hvað felist í því að vera karlmaður. Íslenskir karlar skera sig úr frá öðrum á Norðurlöndum í sjö af þrettán flokkum. Þannig telja sem dæmi 65 prósent íslenskra karlmanna að karlmennska felist í því að leysa úr ágreiningi með ofbeldi en einungis 23 prósent norskra. Arnar Gíslason doktorsnemi í kynjafræði við Háskóla Íslands segir niðurstöðurnar koma á óvart. „Þetta slær mann náttúrulega og að einhverju leyti kemur þetta á óvart. En það er nú ekki alveg allt hérna í sömu áttina, þarna eru hlutir eins og þegar kemur að því að vera faðir og foreldrahlutverkinu þar sem svörin eru öðruvísi, það er greinilega tenging hér á Íslandi á milli karlmennsku og þess og svo þegar kemur að því að vera við stjórn þá erum við á öðrum stað og kannski að koma betur út frá þessu feminíska sjónarhorni.“ Arnar segir niðurstöðurnar vera í takti við umræðuna á Íslandi undanfarin ár. Mikil samkeppni hafi verið um athygli ungra karlmanna og hugmyndir bornar á borð fyrir þá um konur, jafnréttismál, hinsegin mál og um innflytjendur. Ekki sé skrítið að sú umræða hafi haft áhrif og mögulega þurfi að líta svo á að ekki sé um bakslag að ræða sem slíkt heldur nýjan veruleika í hugmyndaheimi ungra karlmanna. „Það er búin að vera hröð þróun í umræðunni og hröð þróun á samfélagsmiðlum og líka í stjórnmálunum,“ segir Arnar. Hann segir hugmyndir líkt og þessar hafa skýr áhrif á veruleikann og bendir meðal annars á athugasemdir Stígamóta sem bent hafa á að kynferðisbrotamálum hafi fjölgað. „Við erum að sjá hluti núna sem við hefðum bara ekki trúað fyrir einhverjum tíu, tuttugu árum til dæmis eins og Cornell-málið, þetta er bara meiriháttar sjokk held ég fyrir mikið af fólki að sjá svona mál og hvernig einhver hópur af bandarískum ungum mönnum bregst við,“ segir Arnar. Vísar hann þar til rannsóknar á hópnauðgun í bandaríska háskólanum Cornell sem vakið hefur heimsathygli. Hann segir að byrja þurfi fyrr að ræða við stráka um jafnréttismál, um ofbeldi, um virðingu, um samskipti. „Sérstaklega við sem erum foreldrar, við viljum auðvitað ekki að okkar strákar finni sig í svona aðstæðum og kunni ekki að bregðast rétt við.“ Þessar hugmyndir sem þarna koma fram, heldurðu að þær hafa áhrif á samfélagið? „Það sem fólk segir og það sem fólk hugsar, það hefur áhrif á það hvernig þjóðfélagið þróast. Við erum að sjá það að hlutirnir eru að breytast hratt og ég held það sé mikilvægt að gripið sé til einhverra að gerða, hvort sem það eru stjórnvöld eða til dæmis íþróttahreyfingin, sem er mikilvægur vettvangur til þess að koma skilaboðum til ungra stráka. Ísland er oft þannig að hugmyndir geta breyst rosalega hratt þannig í því felst líka ákveðið tækifæri að þegar sett er af stað ákveðinn vinna þá er hægt að vinna hlutina til baka og koma okkur á betri stað þegar kemur að jafnréttismálum.“ Þessi rannsókn og þessar niðurstöður ættu að virka sem viðvörunarmerki? „Já hún ætti bara absalút held ég að vera okkur tilefni til að staldra við og skoða hvað er að gerast, hvaða efni og hvaða skilaboð eru ungu strákarnir okkar að fá? Og hvort við viljum við stíga inn í það? Hvaða skilaboðum viljum við koma til þeirra? Um virðingu í samfélaginu, um samskipti og eins og þessi könnun bendir á, hvernig þeir hugsa um ofbeldi, hvað þýðir að vera karlmaður og svo framvegis og svo framvegis.“
Jafnréttismál Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira