Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. september 2026 16:52 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir uppákomur Flokks fólksins ekki koma lengur á óvart. Vísir/Viktor Freyr Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir orð Ingu Sæland, starfandi forsætisráðherra, sem sagði henni að „stíga í eigin skítapott“, lýsa skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar. Viðbrögðin komu henni ekki á óvart.
Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrr í dag bar Guðrún undir Ingu nýjustu fregnir af máli Guðmundar Inga Kristinssonar. Guðmundur lét af embætti sem ráðherra í byrjun árs og sagði síðan úr Flokki fólksins. Í dag opinberaði hann samskipti sín við Guðbjörgu Ingu Magnúsdóttur, þáverandi aðstoðarmann sinn og eiginkonu Ragnars Þórs Ingólfssonar, eftirmanns hans í ráðherraembætti, frá því í janúar. Í skilaboðunum sagði Guðbjörg að hann hefði tvo kosti, afsögn eða stríð. Ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósannindi,“ sagði Inga meðal annars við formann Sjálfstæðisflokksins í svari sínu. Hún er alla jafna barna- og menntamálaráðherra en starfandi forsætisráðherra á meðan Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríksiráðherra voru erlendis á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Guðrún hefur nú tjáð sig með færslu á Facebook í kjölfar uppákomunnar. „Það er fátt farið að koma mér á óvart þegar kemur að Flokki fólksins og framganga Ingu Sæland í þingsal í dag var engin undantekning,“ skrifaði hún. „Inga Sæland gat ekki svarað á Alþingi í dag hvernig þessi ákvörðun var tekin, hvaða aðkomu hún sjálf hafði að henni og hver fól aðstoðarmanni Guðmundar Inga, eiginkonu félags- og húsnæðismálaráðherra, að koma þessum afarkostum á framfæri við hann.“ Í stað þess hafi Inga látið áðurnefnd orð um „skítapott“ falla. Að mati Guðrúnar lýsi það því skeytingarleysi sem hafi einkennt vinnubrögð formanna ríkisstjórnarflokkanna við þeim málum sem hafa komið upp. „Orðaskipti á Alþingi mega vera hvöss. Ég tek því. En ráðherrar í ríkisstjórn Íslands verða samt að svara fyrir ákvarðanir sínar. Þeir verða að segja sannleikann.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira