Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. september 2026 21:21 Slökkvilið Akureyrar segir að vel hafi gengið á vettvangi. Vísir/Anton Brink Efnalekinn í fiskvinnslu Hnýfils á Óseyri á Akureyri orsakaðist af því að stíflueyðir sem hellt var í niðurfall í morgun blandaðist við þrifaefni sem notað var á gólfin síðdegis með þeim afleiðingum að klórgas myndaðist. Slökkvilið segir störf hafa gengið vel á vettvangi. „
Þetta leit ekki vel út í byrjun og svona aðgerð er meira langhlaup heldur en spretthlaup, en þetta fór allt vel að lokum,“ segir Maron Pétursson varaslökkviliðsstjóri slökkviliðsins á Akureyri í samtali við Vísi. Störfum er nú lokið á vettvangi en lögregla fékk tilkynning um slysið 16:22 í dag. Fjórir voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri og að sögn Marons voru þeir með minniháttar ertingu vegna efnanna. Slökkviliðsmenn hafi tryggt vettvang í viðeigandi hlífðarfatnaði. Áður kom fram í tilkynningu lögreglu að um klórgas væri að ræða. „Þarna var verið að losa stíflu í morgun og stíflueyðir því settur í niðurfall. Síðan síðdegis kemur hópur til að þrífa gólfin sem er með annað efni og það blandast síðan við stíflueyðinn í niðurfallinu. Þarna verður bara slys en sem betur fer var þetta ekki mikið magn og vindáttin var mjög hagstæð fyrir okkur líka.“ Hann segir að svæðið sé nú öruggt og störfum lokið. Hann segist hvetja fólk sem var í grenndinni til þess að láta kíkja á það ef það finnur fyrir óþægindum í öndunarfærum.
Akureyri Slökkvilið Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira