„Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Agnar Már Másson skrifar 18. september 2026 11:04 Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir saksóknari í Dettifossmálinu. Vísir/Anton Brink Saksóknari og verjendur í Dettifossmálinu deila um stærðir á Absolut vodkaflöskum og liti á símum. Réttarhöldin halda áfram en þeim á að óbreyttu að ljúka í dag.
Vitnaleiðslur halda áfram í Dettifossmálinu, sem er á þriðja degi, en í málinu eru Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepaj, auk konu hins síðarnefnda og tveggja ungra skipverja, grunaðir um að flytja inn 14 lítra af amfetamínvökva frá Bremerhaven í Þýskalandi með fraktskipinu Dettifossi í apríl 2026. Þegar lögreglu bárust upplýsingar um annan skipverjann í apríl vaknaði fyrst upp grunur um málið, að sögn eins lögreglumanns sem bar vitni í málinu í dag. Við skoðun á áhöfninni hafi lögregla komið auga á tengsl hins skipverjans við Sævar, en skipverjarnir eru sagðir bestu vinir. Sjá meira: Dettifossmálið Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars Arnar, hefur sett verulega út á vinnubrögð lögreglu og ákæruvaldsins. Hann rakti garnirnar úr lögreglumanninum um það hvers vegna Sævari hafi ekki verið sýndur sími sem lögregla taldi vera í hans eigu. Stefán Karl Kristjánsson er verjandi Sævars.Vísir/Anton Brink Sá sími var sagður skráður inn á Signal-reikning undir nafninu „Cloud“, sem virðist hafa verið tengiliður annars skipverjans sem sótti eiturlyfin til Bremerhaven. Lögregla telur Sævar vera umræddan Cloud en síminn fannst á heimili hans. Hann hefur samt neitað því. Sömuleiðis telur lögreglan að Kastriot hafi gengið undir nafninu Milan á Signal, en Kastriot hefur einnig hafnað því. Sími sem hann er talinn hafa notað í málinu hefur ekki fundist og lögreglumaðurinn telur að hann hafi komið þeim síma undan eftir að Sævar var handtekinn í apríl. Verjandinn fékk lögregluþjóninn til að svara því játandi að engin samtöl um ólöglega starfsemi hefðu átt sér stað á þeirra persónulegu reikningum. „Það voru engin samskipti þeirra á milli á þeirra prívatreikningum,“ svaraði lögreglumaðurinn en tók engu að síður fram að lögregla teldi margt benda til þess að Cloud og Mílan væru Sævar og Kastriot, sem áttu í samskiptum um meintan fíkniefnaflutning. Lögregluþjónninn sagði þó að enn væri ekki upplýst hvernig fjármögnun meinta fíkniefnainnflutningsins hafi farið fram. Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir saksóknari áréttaði þá að hann væri ekki ákærður fyrir innflutning fíkniefna. Stefán Karl spurði lögreglumanninn sömuleiðis spjörunum úr um vodkaflöskur sem eru taldar hafa geymt amfetamínvökva. Ljósmynd af fjórum Absolut vodka-flöskum var varpað upp á skjá, þrjár stórar og ein talsvert minni, sem innihéldu gylltan vökva. Skipverjarnir höfðu haldið því fram í réttarhöldunum að þetta væru ekki sömu flöskur og um væri að ræða, og þeir höfðu metið að um væri að ræða samtals tíu lítra rúmmál. Spurði Stefán Karl hvort því fylgdi ekki mikið fjárhagslegt tap að missa fjóra lítra af amfetamínbasa. „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ skaut saksóknarinn inn í. Lögreglumaðurinn taldi ekki rétt að um tíu lítra væri að ræða. Hver er Gústi? „Gústi var að segja við mig í gær að þeir vita aldrei af þessu nema þeir fái eih vísbendingu eða eih rattar out,“ segir í skilaboðum annars skipverjans, þess sem þekkti til Sævars, til hins. Skilaboðunum var varpað upp á skjá og verjandinn spurði: Hver er Gústi? Og hvers vegna var hann ekki rannsakaður? Lögreglumaðurinn svaraði á þá leið að ekki þótti tilefni til þess að kanna frekar hver umræddur Gústi væri. Tveir símar „Ég er með tvo síma á borðinu, hvernig eru þeir á litinn?“ spurði Stefán Karl þá einnig og benti með vísifingri og löngutöng á borðið fyrir framan hann. Mikið hefur verið spurt út í liti á símum á vettvangsljósmyndum til að sannreyna þá síma sem Kastriot og Sævar eru sakaðir um að nota í samskiptum sín á milli og við annan skipverjann. Dómarinn sagði við lögreglumanninn að hann þyrfti ekki að svara spurningu verjandans. Stefán svaraði þá spurningunni sjálfur, sagði að annar væri svartur og hinn væri hvítur. „Það sjá allir sem eru í salnum, líka blaðamenn.“ Blaðamaður í dómssal sá reyndar ekki símann þaðan sem hann sat.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Dómsmál Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira