Stór gulrót í bakgarðshlaupinu í Heiðmörk: „Alveg óskrifað blað“ Aron Guðmundsson skrifar 18. september 2026 10:01 Þorleifur Þorleifsson er Íslandsmethafi í bakgarðshlaupum. Hann er í flottu standi en mun nota hlaup helgarinnar til þess að ná inn mikilvægri æfingu fyrir verkefni með íslenska landsliðinu í næstu viku. Bakgarðshlaup Náttúruhlaupa hefst í Heiðmörk hefst í fyrramálið og þykir víst að ný stjarna muni fæðast í senunni hér heima. Íslandsmethafinn ætlar sér, líkt og aðrir af okkar fremstu hlaupurum, að taka þetta hlaup sem æfingu en bendir á stóra gulrót í komandi hlaupi fyrir þá sem ætla sér langt.
Þú ætlar bara að hlaupa tíu hringi núna, af hverju er það? „Það eru tíu hringir hjá mér. Það er akkúrat mánuður í landsliðskeppnina og við í íslenska landsliðinu ætlum að hlaupa um helgina og ætlum að taka svona eitthvað í kringum tíu hringi sem æfingu,“ segir Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi sem hefur mest hlaupið 62 hringi í bakgarðshlaupi. Það verður ekki vesen fyrir hann að hlaupa tíu hringi, meira vesen er að hætta að hlaupa. „Jú, þetta er náttúrulega mjög gaman en svo er líka voðalega þægilegt að fara inn í þetta rólegur og vita að maður er bara að fara að hætta upp úr kvöldmat og getur þá farið heim og fengið sér kvöldmat og horft svo á keppnina í sjónvarpinu.“ Klippa: Stór gulrót í boði í bakgarðshlaupinu Hvað gerist eftir fyrsta sólarhringinn? Þú ert ríkjandi Íslandsmethafi í þessari grein og eins og þú segir, þið í landsliðinu eruð að fara að taka þetta sem æfingu. Það gerir það að verkum að við erum dálítið að fara inn í svona smá óvissu, er það ekki, með þessa keppni? „Jú, það er enginn að fara að vinna þessa keppni sem hefur unnið áður. Það eru þrír keppendur þarna sem hafa farið 24 hringi eða lengra og svo eru nokkrir sem eru þarna í kringum tuttugu hringina. Þannig það verður mjög spennandi að fylgjast með þessu núna en það verður nýr sigurvegari núna.“ Talandi um þessa þrjá hlaupara sem hafa hlaupið sko sólarhring eða lengur. Erum við þá að tala um að keppnin hefjist ekki af alvöru fyrr en eftir sólarhring, ef svo mætti segja? „Það sem er náttúrulega svolítið spennandi þegar maður er að horfa á þetta er hvað gerist þegar sólarhringur er liðinn. Hverjir halda áfram og fara af stað í hring 25? Við svona búumst við því að það verði sirka tíu sem halda áfram. Um 20 hlauparar áætla að fara 24 hringi eða lengra. Svo er spennandi að sjá hve margir af þeim ná því.“ Stór gulrót Vinsældir bakgarðshlaupanna hér á landi hafa verið mjög miklar og þeir sem svona skara fram úr hafa orðið að stjörnum í greininni hérna heima. „Fyrir áhorfendur þá er þetta hlaup bara alveg óskrifað blað og verður í rauninni mjög spennandi að horfa á. Þá eru náttúrulega fjórar vikur núna í landsliðsverkefni hjá okkur og val fyrir næsta landsliðsverkefni eftir það er í rauninni hafið. Á næstu tveim árum verða það þeir sem eiga flesta hringi sem verða í landsliðinu. Nú er því tækifæri fyrir fólk að stimpla sig inn. Lágmarkið núna inn í landsliðið er um 30 hringir. Það er því alveg gulrót fyrir hlaupara helgarinnar að fara þarna og koma sér inn í liðið.“ Veðurspá helgarinnar er frábær. Hægviðri. „Það hefur oft verið ausandi rigning þannig að veðurspáin núna er alveg frábær. Við erum náttúrulega með tvær brautir þegar kemur að bakgarðshlaupum hér. Það er Heiðmörk og svo Öskjuhlíð og fólk skiptist í tvær fylkingar með það hvor brautin sé uppáhalds.Það sem er skemmtilegra við Öskjuhlíðina er að þar eru fleiri áhorfendur úti í brautinni og meira líf. Í Heiðmörk erum við aftur á móti með þægilegri stíga, möl og mýkra undirlag. Það reynir því aðeins minna á skrokkinn og kannski fallegra umhverfi í kringum brautina. Það getur líka oft verið þægilegra að vera meira einn. Það eru svona kostir og gallar við þetta.“ Það verður spennandi að fylgjast með bakgarðshlaupinu í Heiðmörk um helgina. Sýnt verður beint frá hlaupinu á fréttavefnum Vísi sem og á sjónvarpsstöðinni Vísi.
Bakgarðshlaup Hlaup Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Þungt tap Íslendingaliðsins Jón Dagur og félagar enn með fullt hús Segir Barcola ekki í vandræðum Viktor öflugur í öruggum sigri Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Dagskráin í dag: Manchester City heimsækir Bítlaborgina Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ Líktu Álftanesi við Bayern München „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Sjá meira