Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar 15. september 2026 16:01 Ríkisútvarpið sagði af því frétt í gær, upp úr niðurstöðum Íslenzku æskulýðsrannsóknarinnar, að tvöfalt fleiri drengir í 10. bekk reyktu sígarettur í ár en í fyrra. Jafnframt kom fram að nikótínpúðaneyzla drengja hefði verið meiri en hjá stúlkum en væri nú orðin svipuð hjá kynjunum. Í fréttatíma RÚV var rætt við Ragný Þóru Guðjohnsen, dósent í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands og faglegan stjórnanda rannsóknarinnar. Hún greinir þar réttilega frá því að dregið hafi úr reykingum ungs fólks jafnt og þétt undanfarna áratugi. Vísindamaðurinn tengir aukningu reykinga hjá drengjum við það að með tilkomu rafretta og nikótínpúða hafi nikótínneyzla aukizt og rannsóknateymið hafi „velt því fyrir sér“ hvort smitáhrif milli nikótínvara gætu aukið áhuga ungmenna á sígarettum. Vísindaleg greining á þessu orsakasambandi kom ekki fram í viðtalinu. Skattlagning gæti verið skýring Nú skulum við ganga út frá því að niðurstöður æskulýðsrannsóknarinnar séu marktækar – þótt faglegi stjórnandinn hafi reyndar áður sagt að niðurstöður hennar endurspegli ekki endilega raunveruleikann vegna skekkju í mælingum. Rannsóknateyminu skal hér bent á aðra og sennilegri skýringu á auknum reykingum drengja til að velta fyrir sér, þótt ekki hafi greinarhöfundur vísindalega greiningu á reiðum höndum fremur en teymið sjálft. Í byrjun árs 2025 snarhækkaði verð á nikótínvörum, rafrettuvökva og púðum, með nýrri gildistöku laga um nýjan skatt á nikótínvörur. Fjölmargir, þar á meðal Félag atvinnurekenda, vöruðu við því að með lagabreytingunni yrði of lítill munur á hinu nýja nikótíngjaldi og tóbaksgjaldi. Hætta væri á að lítill munur á skattlagningu tóbaks og nikótínvara, sem almennt er viðurkennt að séu mun skaðaminni en tóbak, myndi stuðla að því að fólk sneri sér aftur að tóbakinu. Niðurstöður rannsóknarinnar geta verið vísbending um slíkt — að unglingsdrengir færi sig úr púðunum og yfir í sígaretturnar, sem eru ekki góð tíðindi. Full ástæða væri til að stjórnvöld gerðu ýtarlegri rannsókn á áhrifum skattabreytinganna á neyzlu tóbaksvara annars vegar og nikótínvara hins vegar. Verður nikótínskatturinn enn hækkaður? Eitt af því sem FA gagnrýndi, þegar áform um nikótínskatt komu fyrst fram, var að fjárhæð hans ætti eingöngu að fara eftir þyngd vörunnar en ekki nikótínstyrk. Félagið og ýmsir aðrir bentu á að nær væri að gjaldið færi lækkandi með minnkandi nikótínstyrk, þannig að neytendur hefðu hvata til að velja fremur vörur með lægri styrk. Á þessar ábendingar og tillögur var hlustað að einhverju marki og skattlagningin tekur í dag mið af nikótínstyrk að mestu leyti. Í samráðgátt stjórnvalda hafa hins vegar nýlega verið birt áform fjármálaráðherra um lagasetningu um að „gjald á nikótínvörur verði óháð styrkleika þeirra“, án þess að þau áform hafi verið útfærð nánar. Slíkt væri afturför og að mati FA ekki í þágu lýðheilsusjónarmiða. Þessi fyrirhugaða breyting ætti mögulega rétt á sér ef um leið stæði til að lækka gjaldið, en miðað við haminn sem fjármálaráðherrann er í þessa dagana leyfir greinarhöfundur sér að efast um að það sé ætlunin. Verði niðurstaðan sú að auka skattlagningu á nikótínvörur í lægri styrkleika, geta áhrifin aftur orðið þau að ýta fólki frekar yfir í tóbaksneyzlu, sem er klárlega mun skaðlegri en notkun tóbakslausra nikótínvara. Það er líka ástæða til að nefna að skattlagning á nikótínvörur er ekki mjög markviss aðgerð til að draga úr því að börn og ungmenni byrji að nota þær. Þar eru upplýsingar og forvarnir mun líklegri til árangurs. Stefnt að sömu ströngu hömlum á nikótínvörur og tóbak Þá er rétt að nefna í þessu samhengi drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um að sameina löggjöf um tóbaksvörur annars vegar og tóbakslausar nikótínvörur hins vegar í einn lagabálk. Markmið ráðherrans virðist vera að sömu ströngu reglur og hömlur skuli gilda um sölu nikótínvara og um tóbaksvörur. Líkt og Félag atvinnurekenda hefur bent á, sendir það röng skilaboð og felur í sér ranga hvata að fella þessa tvo vöruflokka, þar sem annar er augljóslega mun skaðlegri neytandanum en hinn, undir sömu ströngu löggjöfina. Ef sömu ströngu takmarkanir eru settar á notkun og viðskipti með nikótínvörur og tóbaksvörur getur það stuðlað að því að þeir, sem notað hafa nikótínvörur til að hætta að nota tóbak, snúi aftur í tóbaksvörurnar. Það er skiljanlegt og eðlilegt að stjórnvöld vilji hindra að börn og unglingar byrji að nota nikótínvörur. En kapp er bezt með forsjá. Ef hömlur á sölu nikótínvara og skattlagning á neyzlu þeirra gengur fram úr hófi, er hætta á að góðum árangri í tóbaksvörnum sé fórnað. Þetta er nefnilega ekki allt sama tóbakið. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Tóbak Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Skoðun Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun