Ed Sheeran sparkar Macklemore Bjarki Sigurðsson skrifar 14. september 2026 16:51 Ed Sheeran og Macklemore á tónleikum árið 2014. Getty/Ethan Miller Bandaríski rapparinn Macklemore fær ekki að hita upp fyrir fleiri tónleika hjá breska söngvaranum Ed Sheeran eftir ummæli um frjálsa Palestínu á tónleikum fyrr í þessum mánuði. Ummælin fóru fyrir brjóstið á eigendum leikvanga sem vildu ekki leyfa rapparanum að stíga á svið.
Ed Sheeran er nú á tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Hann hefur komið fram á fjórtán tónleikum hingað til og á tíu eftir. Fjöldi listamanna hefur hitað upp fyrir söngvarann, þar á meðal Myles Smith, Lukas Graham og Aaron Rowe. Á síðustu tvennum tónleikum hefur rapparinn Macklemore verið hluti af opnunaratriðunum og stefnt var á að hann kæmi einnig fram á næstu átta tónleikum. Fjórða og fimmta september síðastliðinn fóru tónleikarnir fram á Met Life-vellinum í New Jersey. Áttatíu þúsund manns mættu á báða tónleika og á öðrum þeirra flutti Macklemore þrumuræðu um Palestínu. Þá sagði hann innflytjendalögreglu Bandaríkjanna vera hryðjuverkasamtök og að hann vildi sjá frjálsa Kúbu, Kongó, Súdan og Íran. Macklemore opened for Ed Sheeran at MetLife Stadium wearing a keffiyeh, performed "Hind's Hall" with Gaza footage on the screens, and told 80,000 people he wanted those in Gaza and the West Bank to know "they have not been forgotten." He said every human being deserves "the… pic.twitter.com/4J7fB1zEI4— Clash Report (@clashreport) September 6, 2026 Eftir að myndband af ræðunni fór í dreifingu á samfélagsmiðlum var stofnaður undirskriftarlisti þar sem Sheeran og hans teymi var hvatt til að afbóka Macklemore á næstu tónleika. Sökuðu einhverjir netverjar hann um gyðingaandúð en hann hefur um árabil verið ötull talsmaður frjálsrar Palestínu. Tímaritið Rolling Stone greinir nú frá því að eftir hótanir leikvanga þar sem næstu tónleikar fara fram sé búið að sparka Macklemore. Forsvarsmenn leikvanganna tilkynntu teymi Sheeran að annað hvort kæmi Macklemore ekki fram eða að tónleikunum yrði aflýst. Í yfirlýsingu sem talsmenn Sheeran sendu Rolling Stone segir að ef tónleikunum yrði aflýst myndi það hafa áhrif á hundruð þúsunda aðdáenda. Eftir samræður á bak við tjöldin hafi niðurstaðan verið að best væri ef Macklemore kæmi ekki fram.
Átök í Ísrael og Palestínu Bandaríkin Tónlist Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira