Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar 12. september 2026 22:31 Hvernig virkar samfélag þar sem engar afleiðingar eru fyrir hendi fyrir það að standa ekki við skil af sínu. Ef dómari í fótboltaleik dæmir aldrei hendi? Eða engir sér til þess að þyngdartakmörkunum sé fylgt þegar hnefaleikamenn etja kappi í hringnum, dyraverðir kíkja ekki á skilríki og fleira frameftir götum. Ég læt það liggja milli hluta hverjar afleiðingarnar verða en flestir geta nú lesið á milli línanna og séð til um leikslok. Það sem flestir gera sér ekki grein fyrir að svona er þessu háttað í grunnskólanum. Þar fara nemendur upp um bekk á hverju ári þrátt fyrir að ná ekki lágmarks viðmiðum um hæfni. Og það eru engar haldbærar afleiðingar fyrir því að sinna námi engan veginn, hvorki fyrir foreldra né nemendur. Svo eru börnin að fljóta áfram lenda í því að vera í námsefni sem þau hafa enga burði til fylgja. Vandanum er rutt á undan sér og kennarar fá ekki rönd við reist. Svo koma nemendur á unglingastig þar sem bekkjarstærðir eru alla jafna stærri jafnvel kringum þrjátíu einstaklingar þar sem sumir nemendur kunna varla að lesa og aðrir sem eru byrjaðir að gera ígrundaðar ritgerðir að það gengur heldur ógreiðlega fyrir kennara að veita hverjum og einum kennslu við hæfi. Oft er talað menntun um jöfnunartæki, en það getur ekki falist í því að hífa einungis þá upp sem illa gengur en láta þá sem frammúr skara afskiptalausa og vona hið besta. Bæði bráðgerir og meðalmenn eiga sama rétt á menntun og þeir sem eru óalandi og óferjandi. Einnig hefur borið á því, að því minnsta síðastliðna tvo áratugi ef ekki lengur, að slaknað hefur verulega á öllum hegðunarviðmiðum í uppeldi og foreldrar alltof margra barna líta á skólann sem eitthvað barnapössunarbatterí eða geymslurými og kennarana sem og þjónustufulltrúa. Sömu foreldrar gera svo kröfu á að skólinn taki að sér að ala upp og kenna krökkunum án þess þó að mega setja þeim nokkur mörk. Við þurfum að horfast í augu við hvert hlutverk grunnskólans á að vera og hvaða væntingar við berum til hans sem samfélag. Ef hann er menntastofnun, þá á hann fyrst og fremst að mennta, ekki að ala upp. Því með því að setja grunnskólinn sífellt í stól foreldra og vera uppeldisstofnun erum við að flækja hlutverk hans samhliða því að gera lítið úr foreldrum og gefum í skyn að þau séu ekki starfi sínu vaxin, og ég tel nú að yfirgnæfandi meirihluti séu starfi sínu vaxin. Ein af mögulegum lausnum væri að hleypa nemendum ekki upp á næsta hæfniþrep og upp um bekk ef þau ná ekki lágmarks viðmiðum námsefnið. Annar vinkill væri að stokka upp og byggja grunnskólann upp með ákveðnu áfangakerfi líkt og þekkist í sumum menntaskólum en þá gætu nemendur til að mynda verið í 2. bekk í stærðfræði en 3. bekk í íslensku, eða eitthvað fram eftir götum. En það væri auðvitað ákveðin getuskipting og hefur lengi vel þótt samfélagslegt tabú innan menntakerfisins. Dramatískasta leiðin væri einfaldlega að afnema skólaskyldu eða einkavæða skólakerfið algjörlega en ég held að það myndi ekki góðri lukku stýra og leyfi mér að fullyrða að fæstir yrðu því samþykkir. Höfundur er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Már Sigurðsson Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar