Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Smári Jökull Jónsson skrifar 12. september 2026 14:01 Myndin sýnir frá árásum Húta flutningabíla við Wadiah herstöðina sem sagðir eru hafa borið birgðir Sáda til hersveita á svæðinu. Vísir/Getty Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir.
Um er að ræða svokallaða Austur-vestur leiðslu sem er um tólf hundruð kílómetrar að lengd. Hún liggur þvert yfir Arabíuskaganna til hafnarborgarinnar Yanbu við Rauðahafið. Sádi-Arabía hefur aukið notkun á leiðslunni til að komast hjá lokun Íran á Hormússundi frá því átökin á svæðinu hófust. Leiðslan getur flutt allt að sjö milljónir tunna af hráolíu á dag en árásin átti sér stað síðastliðinn fimmtudag og olli eldsvoðum og nokkru tjóni, meðal annars í Riyadh-héraðinu. Ráku herforingja á svæðinu þar sem drónarnir voru sendir á loft Sádi-arabíska utanríkisráðuneytið fordæmdi árásinu á olíuleiðsluna og sagði að drónarnir kæmu frá Írak. Engu að síður hefur landið ákveðið að grípa ekki til gagnaðgerða, að minnsta kosti ekki í bili. Þess í stað munu þeir styðja við írösku ríkisstjórnina til að koma í veg fyrir árásir sem gerðar eru frá Írak gegn ríkinu og nágrannaríkjum þess. Um leið áskilur Sádi-Arabía sér rétt til að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að verja fullveldi sitt, öryggi og innviði segir í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Sáda. Írösk stjórnvöld hafa gagnrýnt árásina og ráku herforingja sem stýrði aðgerðum í Maysan-héraði eftir að staðfest þótti að drónarnir hefðu verið sendir þaðan. Hafði áhrif á olíuverð Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leiðslan verður fyrir árás. Sádi-Arabía og Bandaríkin gerðu loftárásir á hersveitir studdar af Írönum í júlí eftir að hafa kennt þeim um drónaárásir á olíumannvirki í Sádi-Arabíu sem Hútar í Jemen höfðu þó lýst ábyrgð á. Árásin á leiðsluna kemur á sama tíma og Hútar, hreyfig sem nýtur stuðnings Íran í Jemen, náðu eyjunni Perim á sitt vald við Bab al-Mandeb sundið en það er ein helsta siglingaleiðin að Rauðahafi og Súes-skurðinum. Er þetta sögð einn stærsti landvinningur hreyfingarinnar á svæðinu í mörg ár. Áhrifin á heimsmarkaði létu ekki á sér standa. Olíuverð hefur farið yfir 100 dollara tunnan í fyrsta sinn í nokkra mánuði og er talið af fregnir af árásinni á leiðslunni eigi sinn þátt í hækuninni. Verðið hækkaði um meira en átta prósent í vikunni.
Sádi-Arabía Íran Írak Bensín og olía Jemen Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira