Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. september 2026 11:58 Sigurður Helgi segir nauðsynlegt fyrir utanríkisnefnd að hafa allar upplýsingar fyrir hendi. Vísir/Vilhelm/EPA Varaformaður utanríkisnefndar segir að nefndin hefði átt að vera upplýst fyrr um símtal Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Bjarna Benediktssonar þáverandi forsætisráðherra sem átti sér stað haustið 2024 þar sem Trump viðraði hugmyndir um að Ísland yrði 51. ríki Bandaríkjanna.
Ríkisútvarpið greindi í gær frá samtalinu sem átti sér stað þann 26. nóvember 2024 og hefur eftir heimildarmönnum að Trump hafi í gamansömum tónI sagt að Bandaríkjamenn kölluðu Ísland gjarnan fimmtugasta og fyrsta ríkið. Bjarni hafi tekið ummælunum sem léttu gríni en þá hafi Bandaríkjaforsetinn sagt Bjarna að hugsa málið vel að loknum íslensku þingkosningunum sem haldnar voru fjórum dögum síðar. Tveimur mánuðum síðar í janúar 2025 fór Trump mikinn í tali um að hann vildi eignast Grænland, líkt og frægt er orðið. Minnisblað var skrifað upp úr samtalinu en forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið hafa neitað að afhenda minnisblaðið á þeim forsendum að um sé að ræða upplýsingar um milliríkjasamskipti sem byggi á gagnkvæmu trausti ríkjanna. Fréttastofa hefur ekki náð tali af Bjarna Benediktssyni vegna málsins, né heldur Pawel Bartozsek formanni utanríkisnefndar en samkvæmt heimildum fréttastofu var málið rætt á aukafundi nefndarinnar þann 31. ágúst, eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Sigurður Helgi Pálmason varaformaður nefndarinnar segir símtalið fela í sér mikilvægar upplýsingar. „Kom þetta manni á óvart? Já, gerir það en samt ekki. Ég veit það er mjög erfitt að segja að þetta hafi komið manni brjálæðislega á óvart en þetta kannski staðfestir það sem mann grunaði að Ísland hafi verið nefnt,“ segir Sigurður. Sigurður segir að fyrir nefndina hefði skipt máli að fá upplýsingarnar fyrr á borðið, því samhengið skipti máli. „Það er náttúrulega ráðuneytið sem að ákveður þetta og ég hef nú talað fyrir því að Þorgerður hafi staðið sig mjög vel og verið í góðum samskiptum við utanríkismálanefnd en það má alltaf gera betur og það er eitthvað sem að hún hefur sjálf talað um,“ segir Sigurður. „Ég hefði persónulega viljað vita þetta fyrr. Þegar ég tala um þetta samhengi, þegar þú ert með aðila sem er svona samhengislaus eins og forsetinn er þá hefði ég viljað að við hefðum þetta samhengi. Þessi nálgun á Trump sem allir hafa gert, við sjáum það í samskiptum við hann að það er ákveðin meðvirkni.“ Henni þurfi að ljúka. Sigurður segir skipta máli að nefndin sé upplýst allt sem viðkomi hagsmunum og öryggi Íslands. „Það er þetta lögbundna hlutverk hennar sem er mjög mikilvægt, það hefur verið farið framhjá henni í gegnum tíðina og við þurfum að komast á þann stað að það sé ekki gert, ekki það að ég haldi að það sé farið framhjá henni í þessu tilviki, þetta er bara mat hjá utanríkisráðuneytinu en það er mín skoðun að ég hefði gert þetta öðruvísi.“
Utanríkismál Donald Trump Bandaríkin Norðurslóðir Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Sjá meira