Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar 10. september 2026 13:45 Læsi er ein af grundvallarforsendum þess að geta tekið virkan þátt í námi og samfélagi. Það snýst um miklu meira en að geta lesið orð á blaði. Læsi felur í sér að skilja, túlka, leggja mat á og nýta upplýsingar og hefur áhrif á nám, sjálfstæði, sjálfsmynd og möguleika einstaklinga til framtíðar. Á degi læsis er því tilefni til að minna okkur á að ábyrgðin er sameiginleg. Skólar gegna lykilhlutverki, en þeir geta ekki einir byggt upp öflugt læsi og lestrarmenningu. Þar þurfa skólar, heimili, stjórnvöld og samfélagið allt að vinna saman. Góð lestrarkennsla byggir á faglegri þekkingu Góð lestrarkennsla verður ekki til af tilviljun. Hún þarf að byggja á faglegri þekkingu og gagnreyndum aðferðum. Kennarar þurfa að hafa þekkingu á þróun læsis, fylgjast markvisst með framförum nemenda og geta brugðist snemma við þegar vísbendingar koma fram um að barn þurfi aukinn stuðning. Við þurfum að leggja áherslu á snemmtæka íhlutun, en jafnframt muna að stuðningsþörf hverfur ekki við ákveðinn aldur. Börn og ungmenni þurfa að geta fengið markvissan stuðning við lestur og lesskilning á öllum stigum skólagöngunnar. Skimanir, stöðumat og próf geta verið mikilvæg verkfæri, en mælingar einar og sér bæta ekki læsi. Það sem skiptir máli er hvað við gerum með niðurstöðurnar. Þær þurfa að leiða til markvissrar kennslu, viðeigandi íhlutunar og eftirfylgni. Sérkennarar gegna lykilhlutverki Þar er mikilvægt að sérfræðiþekking sérkennara sé nýtt. Sérkennarar búa yfir sérhæfðri þekkingu á námi og kennslu barna með fjölbreyttar námsþarfir. Þeir gegna mikilvægu hlutverki við mat á stöðu nemenda, snemmtæka íhlutun, skipulagningu kennslu og sérhæfðan stuðning við börn sem glíma við lestrar- og námserfiðleika. En sérkennarinn á ekki að vera síðasta úrræðið þegar allt annað hefur verið reynt. Sérfræðiþekking sérkennara þarf að vera hluti af skólastarfinu frá upphafi. Öflugasta starfið verður þegar almennir kennarar og sérkennarar vinna saman, rýna í stöðu nemenda, skipuleggja kennslu og bregðast við áður en tímabundinn vandi verður að langvarandi námsvanda. Til þess þurfa skólar að hafa aðgang að sérkennurum og þeim þarf að gefast raunverulegt svigrúm til faglegs starfs. Ef við ætlum að tala af alvöru um snemmtæka íhlutun, inngildandi skólastarf og nám við hæfi hvers og eins verður sérfræðiþekking að fylgja þeim markmiðum. Lestur á ekki aðeins heima í skólanum Við þurfum líka að tala um ábyrgð okkar utan skólans. Skólinn ber ábyrgð á markvissri lestrarkennslu, en lestur má ekki verða eitthvað sem eingöngu fer fram innan veggja skólans. Heimilin gegna ómetanlegu hlutverki við að byggja upp jákvætt viðhorf barna til lesturs. Að lesa fyrir börn, lesa með þeim, ræða það sem lesið er, fara á bókasafnið og sýna sjálf áhuga á bókum og lestri eru einfaldar en mikilvægar leiðir foreldra til að styðja við læsi barna sinna. Og þetta á ekki aðeins við um yngstu börnin. Unglingar þurfa líka hvatningu. Þeir þurfa fyrirmyndir, tíma til lesturs og ekki síst aðgang að efni sem vekur áhuga þeirra. Við þurfum að varast að lestur verði í huga barna fyrst og fremst verkefni sem þau eiga að ljúka fyrir skólann. Lestur þarf líka að tengjast forvitni, áhuga, ánægju og upplifun. Þar skiptir gott samstarf heimila og skóla miklu máli. Læsi verður ekki eflt með einu lestrarátaki eða einni lestrarstund. Það byggist upp smám saman, með endurtekningu, hvatningu og sameiginlegri trú á mikilvægi lesturs. Börn þurfa bækur og bækur sem þau vilja lesa Við getum hvatt börn til að lesa meira. Við getum sett okkur metnaðarfull markmið um læsi og lagt áherslu á bætta lestrarkennslu. En þá verðum við líka að tryggja börnum aðgang að fjölbreyttu og vönduðu lesefni. Barn sem á að verða lesandi þarf bækur. Það þarf bækur fyrir barnið sem les allt sem það kemst yfir, en ekki síður fyrir barnið sem hefur enn ekki fundið bókina sem vekur áhuga þess. Við þurfum bækur fyrir byrjendur, vana lesendur, börn með lestrarerfiðleika og börn með ólík áhugasvið, tungumál og reynsluheim. Þess vegna vekja fyrirhugaðar skerðingar á fjármagni til bókaútgáfu áhyggjur. Á sama tíma og við leggjum ríka áherslu á að efla læsi barna og ungmenna verðum við að gæta þess að ákvarðanir um fjármagn vinni ekki gegn þeim markmiðum. Fjármagn til útgáfu íslenskra bóka fyrir börn og ungmenni er ekki munaður. Það er fjárfesting í læsi, íslenskri tungu og menningu. Það skýtur því skökku við að kalla eftir auknum lestri barna á sama tíma og dregið er úr stuðningi við þá sem skrifa, þýða og gefa út bækurnar sem við viljum að börnin lesi. Sameiginlegt verkefni okkar allra Við vitum að staða læsis meðal íslenskra barna og ungmenna gefur tilefni til aðgerða. Niðurstöður rannsókna, meðal annars PISA, hafa sýnt að of stór hópur íslenskra ungmenna nær ekki nægilega góðum tökum á lesskilningi. Það eigum við að taka alvarlega en svarið getur ekki eingöngu falist í fleiri mælingum. Við þurfum að fjárfesta í því sem gerist á milli mælinganna. Við þurfum vel menntaða kennara, öfluga sérkennara og aðra sérfræðinga innan skólanna. Við þurfum gagnreyndar kennsluaðferðir, snemmtækan og markvissan stuðning og nægt svigrúm til að mæta ólíkum þörfum nemenda. Við þurfum foreldra og heimili með okkur í liði. Og við þurfum samfélag sem sýnir í verki en ekki aðeins í orði , að lestur, bækur og íslensk tunga skipti máli. Á degi læsis eigum við því ekki aðeins að spyrja hvernig við fáum börnin okkar til að lesa meira. Við eigum líka að spyrja hvað við fullorðna fólkið ætlum að gera til að skapa þær aðstæður sem börnin þurfa til að verða læs. Fjárfestum í kennurum. Fjárfestum í sérkennurum. Fjárfestum í bókum og námsefni. Fjárfestum í snemmtækum stuðningi. Umfram allt skulum við fjárfesta í börnunum okkar. Læsi er ekki verkefni eins dags. Það er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar. Höfundur er formaður Félags íslenskra sérkennara (FÍS). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun