Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Aron Guðmundsson skrifar 9. september 2026 20:43 Frábær spilamennska Ragnars Más Garðarssonar í dag sem skilaði besta skori allra á öðrum hring úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Golf.is / Seth Ragnar Már Garðarsson, kylfingur úr GKG, átti besta hring dagsins á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour, í Þýskalandi. Nokkrir íslenskir kylfingar eru í góðum málum á mótinu.
Um úrtökumóti á fyrsta stigi er að ræða og fer það fram í Þýskalandi. Mótið er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökumótanna en kylfingar þurfa að komast í gegnum þrjú stig til þess að fá þátttökurétt á DP World Tour og óhætt að segja að þræða þurfi nálaraugað til að komast alla leið. Átta kylfingar frá Íslandi taka þátt á mótinu og átti Ragnar besta hring dagsins af öllum kylfingum í dag er hann fór þennan annan hring mótsins á 67 höggum, þremur höggum undir pari. Ragnar fékk draumabyrjun með erni á fyrstu holu. Alls fékk hann svo fimm fugla og tvo skolla. Eftir fyrstu tvo hringi mótsins er hann jafn í ellefta sæti á alls fjórum höggum undir pari og er sömu sögu að segja um ríkjandi Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson og Aron Júlíusson. Sigurður Arnar Garðarson er svo skammt undan á þremur höggum undir pari og jafn í 16. sæti mótsins en aðrir Íslenskir kylfingar töluvert neðar á listanum. Leiknir eru fjórir hringir á mótinu. Alls spila 82 kylfingar á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig, þar sem svo samtals um 320 kylfingar spila á fjórum mótum um mánaðamótin október-nóvember á Spáni. Á lokamótinu mæta svo 156 kylfingar til leiks og leika sex hringi. Aðeins þeir 15 efstu, og jafnir 15. sæti, á lokaúrtökumótinu komast inn á DP World Tour auk þess að fá fullan keppnisrétt á HotelPlanner Tour, næststerkustu mótaröð Evrópu.
Golf Íslendingar erlendis Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira